Heimili kynnir til sölu rúmgóða vandaða 3ja herbergja íbúð. Íbúðin er á jarðhæð með sérinngangi, sólpalli og stæði í bílskýli. Eignin er skráð 121 fm að stærð. Íbúðarrými 111,4 fm og geymsla í kjallara 9,6 fm. Byggingarár 2005. Gengið er inn um sérinngang í flísalagða forstofu mem fataskápum. Baðherbergi flísalagt og góður sturtuklefi. Þvottahús flísalagt með innréttingu. Barnaherbergi merð fataskápum. Hjónaherbergi með góðum skápum. Eldhús með borðkrók og góðri innréttingu. Stór stofa með útgangi út á afgirtan sólpall í bakgarð í suðri. Flísar á gólfum og eikarinnréttingar. Stæði í bílskýli og við það góð geymsla. Góð vönduð íbúð. Stutt í barna- og leikskóla.