Um okkur


Heimili fasteignasala var stofnuð árið 2002 og verður fyrirtækið því 10 ára á næsta ári. Fyrtækið hefur tekið þátt í þeirri uppsveiflu sem varð á fasteignamarkaðnum og stækkað og minnkað í samræmi við það. Upphaflega opnaði Heimili í Skipholti 29a á annari hæð í húsi sem oft er kennt við Opal sælgætisverksmiðjuna sem áður var þar til húsa. Fyrirtækið óx og stækkaði ört og árið 2005 fluttist starfsemin upp í Síðumúla 13, en þá voru starfsmenn orðnir á annann tuginn. Þegar fasteigna "kreppan" skall á um haustið 2007 var fljótlega tekin ákörðun um að minnka aftur við sig húsnæði, enda samdráttur gríðarlegur. Þá vildi svo skemmtilega til að gamla húsnæðið okkar í Skipholti 29a hafði losnað skömmu áður og þangað fluttum við. Í upphafi árs 2012 urðu svo aftur breytingar á húsæðismálum fyrirtækisins þegar það flutti í glæsilegt húsnæði að Suðurlandsbraut 22.

Eigendur Heimili fasteignasölu eru Bogi Pétursson og Finnbogi Hilmarsson löggiltir fasteignasalar. Báðir hafa unnið lengi við fasteignasölu, Bogi frá 1997 og Finnbogi frá 1994. Við leggjum áherslu á vönduð og örugg vinnubrögð án þess að hlutirnir séu endilega leiðinlegir :)  Fasteignakaup geta vissulega reynt á en ferlið getur verið bráðskemmilegt ef vel er utan um það haldið.

Við bjóðum nýja og gamla viðskipta vini ávallt velkomna til skrafs og ráðagerða og höfum alltaf gott kaffi á könnunni.

Kveðjur

Bogi og Finnbogi