Upplýsingar fyrir kaupanda og seljanda.

Fasteignaviðskipti snúast í mörgum tilfellum um aleigu fólks. Öryggi viðskiptanna skiptir því meginmáli. Hér fyrir neðan eru nokkur atriði sem skipta kaupendur og seljendur verulegu málið þegar staðið er í fasteignaviðskiptum.
Samningur um sölu fasteignar.
Þegar eign er tekin í sölu er gengið frá sölusamningi fasteignina en samningurinn er skriflegur milli seljanda fasteignar og fasteignasala um sölutilhögun eignarinnar. Sölusamningurinn er útfylltur og undirritaður af báðum aðilum við þegar eignin er tekin til sölumeðferðar.
Yfirlýsing húsfélags.
Þegar fasteign í fjöleignahúsi er tekin til sölumeðferðar er nauðsynlegt að fyrir liggi yfirlýsing húsfélags þar sem upplýst er um hvað innifalið er í húsfélagsgjaldi, greiðslustöðu hússjóðs, væntanlegar framkvæmdir o.fl. Yfirlýsing húsfélags er afhent seljanda þegar gengið er frá sölusamningi.
Yfirtaka áhvílandi lána.
Í flestum tilvikum er hægt að yfirtaka áhvílandi lán á eignum án kostnaðar fyrir kaupandann. Reglur lánastofnanna eru mismunandi varðandi yfirtöku og þarf oftast að fara í gegnum greiðslumat í viðkomandi lánastofnun. Oftast er svo nafnabreytingu þinglýst með kaupsamningi eignarinnar.
Veðflutningur/veðbandslausn.
Í fasteignaviðskiptum dagsins í dag er algengt að seljendur vilji halda í lán sín og flytja þau með sér á nýja eign, almennt er það ekki vandamál. Að mörgu þarf að hyggja við flutning lána og oft þarf veðleyfi lánastofnanna til að hlutirnir gangi upp. Eins þarf að ganga úr skugga um að veðrými sé nóg á eignina sem flytja á lán á o.s.frv. Reglur lánastofnanna eru auk þess mismunandi þegar kemur að veðflutningum. Það getur tekið allt að 10-15 daga ferlið að flytja lán milli eigna. Við á Heimili fasteignasölu veitum góð ráð og upplýsingar varðandi hvernig best er að standa að þessum málum.
Uppgreiðsla lána.
Það getur verið kostnaðarsamt fyrir eiganda eignar að greiða upp ákvílandi lán. Mismunandi relgur eru hjá lánastofnunum um uppgreiðslu, allt frá því að uppgreiðsla kostar ekkert til hárra fjárhæð. Hafa þarf þetta í huga þegar mat er lagt á hvort að greiða eigi upp lán eða ekki.               
Kostnaður kaupanda við kaup.
Við kaup á fasteign greiðir kaupandi ýmis gjöld vegna kaupanna. Þar má nefna 0,4 % stimpilgjald af fasteignamati eignar og 1,5 % stimpilgjald af nýjum lánum. Ekki er greitt stimpilgjald við yfirtöku lána. Einnig greiðist kr. 40.000,- í umsýslu og þjónustugjald til fasteignasölunnar auk kr. 2.000,- fyrir hvert skjal sem þarf að láta þinglýsa.
Fyrstu kaup – niðurfelling stimpilgjalds.
Þegar um fyrst kaup kaupanda er að ræða á hann rétt á að fá niðufellt stimilgjald af nýjum lánum sem eru þinglýst á eignina og eru tilkomin vegna kaupanna.
Uppgjör gjalda.
Uppgjör allra gjalda og ákvílandi lána miðast við afhendingardag eignarinnar. Það er seljanda ber að greiða af eigninni til afhendingardags og kaupanda frá afhendingardegi. Við afsal eru þessi gjöld gerð upp milli aðila og endurgreitt eftir því sem við á.
Eignaréttur.
Kaupandi verður ekki eigandi eignarinnar fyrr en við útgáfu afsals. Á afsalið þurfa að rita kaupandi og seljandi eignarinnar. Einnig þarf maki seljanda að árita afsalið, hafi fjölskyldan búsetu í eigninni eða eignin verið notuð til atvinnurekstrar fyrir annað hjóna eða bæði.

Gjaldskrá Heimilis fasteignasölu.

1.0. Almennt um Þóknun.
1.1. Eftirfarandi gjaldskrá er leiðbeinandi um endurgjald fyrir þjónustu Heimili fasteignasölu og gildir nema um annað hafi verið samið. Þóknunarfjárhæðir í gjaldskránni eru tilgreindar án virðisaukaskatts.
1.2. Ákvörðun þóknunar mótast af þeim fjárhagslegu hagsmunum sem tengjast því verki sem unnið er að, sbr. lög nr. 99/2004 um sölu fasteigna- fyrirtækja og skipa. Þegar þóknun er ákvörðuð samkvæmt tímagjaldi skal tímaskrá fylgja reikningi. Söluþóknun innifelur verðmat fasteignarinnar, gerð söluyfirlits, gerð kauptilboðs, kaupsamnings, kostnaðaruppgjörs og afsals. Fyrir auglýsingar og útvegun gagna greiðist sérstaklega sbr. síðar.
1.3. Skrá sú sem hér fer á eftir er leiðbeinandi um endurgjald og sé um það samið má víkja frá henni til hækkunar eða lækkunar.
2.0. Kaup og sala.
Samkvæmt lögum nr. 99/2004 um sölu fasteigna- fyrirtækja og skipa, skal gera samning milli seljanda og fasteignasala um sölu eignar.  
2.1. Sala fasteigna
a. Sala fasteigna í almennri sölu 2,9 % af söluverði.
b. Sala fasteigna í einkasölu 2,5 % af söluverði.
c. Aðstoð og/eða skjalafrágangur við sölu og kaup fasteigna 2,0% af söluverði, þó aldrei lægri en kr. 150.000.-
d. Sala félaga og atvinnufyrirtækja 5% af heildarsölu, þ.m.t. birgðir.
e. Sala bifreiða sem settar eru upp í kaupverð fasteigna 3 % af söluverði en þó aldrei lægri en kr. 30.000.-.
f. Endursala eignar sem áður hefur verið seld í makaskiptum 1,5 % af söluverði.
g. Tímagjald er kr. 12.000,-.
3.0. Ýmis ráðgjöf og skjalagerð.
3.1. Þóknun fyrir að fara yfir og athuga samninga og skjöl við sölu eða kaup fasteigna og skipa eða annarra eigna sem fasteignasali, lögmaður eða annar hefur gert er samkvæmt tímagjaldi.
3.2. Í þeim tilvikum sem gerð veðleyfa, veðbandslausna, umboða, skuldabréfa og tryggingabréfa tengist ekki kaupsamningsgerð er þóknun kr. 5.000.- fyrir hvert skjal með vottun ef við á.
3.3. Þóknun fyrir munnlega ráðgjöf og leiðbeiningar er samkvæmt tímagjaldi eða fast gjald, eftir samkomulagi.
4.0. Skoðun og verðmat fasteignar.
Fyrir verðmat á íbúðarhúsnæði sé fasteign ekki sett í sölu reiknast þóknun kr. 18.000,-  Fyrir skoðun og skriflegt verðmat á atvinnuhúsnæði sem ekki kemur til sölumeðferðar greiðist 0,1% af verðmatsfjárhæðinni en þó að lágmarki kr. 40.000.-.
5.0. Þóknun fyrir útleigu fasteigna.
5.1. Þóknun fyrir gerð leigusamnings um einstakt íbúðarhúsnæði skal andvirði mánaðarleigu, - auk kostnaðar við gagnaöflun.
5.2. Þóknun fyrir að annast milligöngu um að koma á leigusamningi um atvinnuhúsnæði skal samsvara mánaðarleigu hins leigða.
5.3. Sé leigusamningur um atvinnuhúsnæði gerður til fimm ára eða lengri tíma, skal þóknunin samsvara tveggja mánaða leigu.
6.0. Ýmis ákvæði.
6.1. Kaupendaþóknun (umsýslugjald) samkv. þjónustusamningi.  Kaupandi fasteignar greiðir fast gjald kr. 40.000,- fyrir þjónustu fasteignasölunnar sem m.a. innifelur ýmiskonar ráðgjöf og aðstoð fyrir, eftir og við kauptilboðsgerð, öflunar greiðslumats og gagna, þinglýsingarmeðferð kaupsamnings og afsals og allra veðskjala sem kaupandi greiðir með við kaupsamning og ábyrgð því samfara að þessi skjöl skili sér á rétta staði. Gerð ýmissa skjala vegna lántöku og/eða aðstoð við veðflutninga (sé þess þörf), lögbundin hagsmunagæsla vegna ýmissa mála sem upp kunna að koma í söluferlinu s.s vegna gallamála, aflýsinga o.fl.
6.2.Eigandi greiðir kr.  39.000,- m/vsk þegar eignin er sett á söluskrá. Innifalið í því gjaldi er m.a. skoðun eignarinnar, verðmat, akstur, útvegun allra gagna, öll afgreiðsla, eftirfylgni og úrvinnsla fyrirspurna og skráning eignarinnar á viðurkennda fasteignavefi.
6.3. Kostnað við gerð og birtingu auglýsinga skal viðskiptamaður greiða samkvæmt gjaldskrá viðkomandi auglýsingamiðils hverju sinni.


Virðisaukaskattur er 25.5% og er til viðbótar allra gjalda samkvæmt gjaldskránni.