Gullsmári 11, 201 Kópavogur
69.900.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
79 m2
69.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1994
Brunabótamat
35.850.000
Fasteignamat
58.850.000

Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu:  Gullsmári 11 - björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 5. hæð í húsi fyrir 60 ára og eldri. Fallegt útsýni til suðurs og vesturs. Innangengt í Félagsheimili eldri borgara. Frábær staðsetning við Smáralindina.

Eignin er seld með hefðbundnum fyrirvörum.


Koomið er inn í anddyri með innbyggðum fataskápum. Baðherbergið er með sturtuklefa, handklæðaofni, salerni og ljósri innréttingu með handlaug, flísar á veggjum og dúkur á gólfi, tengi fyrir þvottavél. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum og fallegu útsýni. Svefnherbergi með fataskápum. Stofan er opin og björt með útgengi út á yfirbyggðar svalir til suð-vesturs með fallegu útsýni. Eldhúsið er opið við stofuna, í því er ljós viðarinnrétting og góður borðkrókur. Inn af eldhúsi er búr/geymsla. Á gólfum er gólfdúkur.

Frá jarðhæð hússins er innangengt í Félagsheimili eldri borgara en þar er hægt að kaupa heitan mat, kaffi og sækja ýmiskonar þjónustu og félagsstarf. Gullsmári er í göngufæri við verslanir og þjónustu m.a. verslanamiðstöðina Smáralind, Smáratorg og Heilsugæslu Kópavogs. Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, [email protected]


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni í 20 ár.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.