Stöðulsholt 39, 310 Borgarnes
88.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
4 herb.
150 m2
88.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2022
Brunabótamat
78.600.000
Fasteignamat
73.200.000
Opið hús: 04. maí 2024 kl. 13:00 til 13:30.

Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu: Nýbyggt og fallegt einbýlishús með bílskúr við Stöðulsholt 39, 310 Borgarnes.  Afhent fullklárað og fullbúið með innréttingum, innbúi, tækjum og gólfefnum. 
Eignin skiptist í forstofu, rúmgott opið rými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymsla og bílskúr.  Lóð er frágengin m grasi /grófjafnað bílastæði ásamt 76 fm sólpalli. 


Nánari lýsing:
Komið er inn í rúmgott anddyri með flísum á gólfi. Þaðan opnast inn í stórt og bjart opið rými þar sem er eldhús, stofa og borðstofa. Stórir gólfsíðir gluggar með þreföldu gleri. Aukin lofthæð, innfelld lýsing í lofti. Parket á gólfi.
Úr stofu, eldhúsi og baðherbergi er útgengt út á 76 fm sólpall.  Þrjú góð svefnherbergi eru í húsinu einnig með aukinni lofthæð og innfelldri lýsingu. Parket á gólfi.  Baðherbergi er fullbúið. Létt innrétting með handlaug. Flísar á gólfi og veggjum, walk-in sturta með glervegg. Gólfhiti er í öllu húsinu. 


Upplýsingar úr skilalýsingu eignar: 
  • Aukin lofthæð í öllum rýmum og innfeld lýsing í loftum. Gólfhiti er í öllu húsinu. 
  • Þrefalt gler  í öllum gluggum.
  • Húsið er afhent með 10 mm eikarparketi frá Álfaborg á öllum rýmum ( stofa, borðstofa,eldhús,svefnherbergi ) 
  • Forstofa, baðherbergi og þvottaherbergi ásamt bílskúr er afhent flísalagt með flísum frá Álfaborg.
  • Eldhúsinnrétting steingrá frá Ikea. Heimilistæki að Electrolux gerð fylgja með. Helluborð, háfur, bakarofn, uppþvottavél og ísskápur.
  • Innihurðar eru yfirfelldar eikarhurðar. Baðinnrétting/ blöndunartæki frá Bauhaus.
  • Gófflötur í sameiginlegu rými er 45 fm.
  • Svefnherbergi I, stærð 10,3 fm. Svefnherbergi II, stærð 12,3 fm. Svefnherbergi III, stærð 12.5 fm.
  • Baðherbergi stærð 7 fm.
  • Þvottahús/geymsla stærð 7 fm.
  • Bílskúr stærð 30,6 fm.
Eignin er afar vel staðsett í friðsælu og barnvænu hverfi í Egilsholti. Skóli, leikskóli og þjónusta í næsta nágrenni. 
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir löggiltur fasteignasali,[email protected]/ 8994703


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.