Þórðarsveigur 17, 113 Reykjavík (Grafarholt)
64.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
91 m2
64.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2006
Brunabótamat
51.440.000
Fasteignamat
64.550.000

Heimili fasteignasala kynnir fallega og vel skipulagða 3ja herbergja 91,8 fm. íbúð á annari hæð við Þórðarsveig 17 í Reykjavík, þar af 6,8 fm. sérgeymsla í kjallara auk stæðis í lokaðri bílageymslu.  Virkileg aðlaðandi íbúð á vinsælum stað í Grafarholtinu. Húsið er steinhús byggt árið 2006.

** Bókið skoðun hjá [email protected] / 8994703 **

Nánari lýsing:
Komið inn í forstofu með fataskáp, flísar á gólfi.
Eldhúsið er með fallegri eikarinnréttingu og að fullu opið inn í stofu. 
Stofan er björt með útgengi á rúmgóðar suðvestur svalir.
Hjónaherbergi með góðum fataskápum. 
Barnaherbergið er með fataskáp.
Baðherbergið er með fallegri eikarinnréttingu og baðkari ásamt sér sturtuklefa, flísar í hólf og gólf. Gluggi á baði. 
Þvottahús innan íbúðar með skolvaski og hillum, flísar á gólfi. 
Gólfefni eru eikarplankaparket, nema baðherbergi og þvottahúsi en þar eru flísar. Í sameign er sér geymsla, hjóla og vagnageymsla auk merkts stæðis í bílageymsluLyfta.

Viðhald og framkvæmdir:
 2023 Sprunguviðgerðir á vatnsbrettum og og allir útveggir sílanbornir ( waterglass steypuvörn). Gler endurnýjað þar sem þurfti, ásamt opnanlegum fögum og gluggalistum þar sem þurfti, ný stormjárn. Gluggar og svalahurðir málað að utan.  

 
Þórðarsveigur er í vinsælu og barnvænu hverfi í Grafarholtinu. Stutt er í Ingunnarskóla, leikskóla, fallegar gönguleiðir sem og verslun og þjónustu.  Auk þess góðar gönguleiðir og útivistarsvæði í næsta nágrenni. 

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir, löggiltur fasteignasali, [email protected] / 8994703


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.