Snorrabraut 56, 105 Reykjavík (Austurbær)
64.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
85 m2
64.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1992
Brunabótamat
46.450.000
Fasteignamat
68.700.000

Heimili fasteignasala kynnir til sölu fallega og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með skjólgóðri verönd í góðu fjölbýli fyrir 55 ára og eldri (byggt árið 1992) að Snorrabraut 56b í Reykjavík. Eignin er skráð 85 fm að stærð og telur anddyri/hol, eldhús, borð- og setustofu, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og geymslu innan íbúðar auk stórrar og skjólgóðrar suður verandar sem gengið er út á frá stofu. Þá fylgir eign sameiginlegt þvottahús á jarðhæð. Falleg og vel skipulögð eign í hjarta Reykjavíkur þar sem stutt er í Sundhöll Reykjavíkur, Klambratún, miðbæ Reykjavíkur og alla helstu þjónustu. Ath! Eignin getur verið laus til afhendingar fljótt.

Fyrir nánari upplýsingar um eignina og skoðun hafið samband við Brynjólf Snorrason, lgfs., [email protected]


Nánari lýsing.
Anddyri: rúmgott og bjart með ágætum fataskáp. Á gólfi er parket. 
Eldhús: ljós innrétting með ágætu skápaplássi og góðri vinnuaðstöðu. Á milli boröplötu og efri skápa eru flísar og á gólfi er parket.
Borð- og setustofa: í opnu og björtu rými með eldhúsi, parket á gólfi, góðir gluggar til suðurs og útgengt á skjólgóða suður-verönd.
Hjónaherbergi: afar rúmgott, með gluggum á tvo vegu og rúmgóðum fataskáp. Á gólfi er parket.
Svefnherbergi: parket á gólfi, gluggi með opnanlegu fagi. 
Baðherbergi: er með dúk á gólfi og flísum á veggjum, ágætri innréttingu, sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél.
Geymsla: í sér rými inn af anddyri.
Sameign: flísalagt anddyri og rúmgott þvottahús.

Falleg og vel skipulögð íbúð á frábærum stað þar sem stutt er í alla þjónustu, sund, verslanir og miðbæ Reykjavíkur.

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected]


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.