Opið hús: 05. desember 2024 kl. 12:30 til 13:00.Opið hús: Breiðavík 29, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 04. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 5. desember 2024 milli kl. 12:30 og kl. 13:00. Vinsamlega bókið skoðun.
Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu Breiðuvik 29, vel skipulagða, bjarta og rúmgóða tveggja herbergja íbúð með sérinngangi á efstu hæð ( 3. hæð ) sér þvottahús innan íbúðar og svalir í suðvestur. Eignin er skráð 72,4 fm þar af geymsla 8,5 fm.Nánari lýsing: Sérinngangur á 3. hæð.
Forstofa er með flísum á gólfi, fataskápur.
Hol/gangur er með parket á gólfi og aðgengi í önnur rými íbúðar.
Stofa, borðstofa og eldhús er í björtu og opnu alrými með útgengi út á svalir sem snúa í suð-vestur. Milliveggur skilur að stofu og eldhús að hluta til. Parket er á gólfi.
Eldhúsinnrétting er L-laga með bæði efri og neðri skápa, flísar þar á milli. Bakarofn og helluborð með viftu þar fyrir ofan.
Svefnherbergi er mjög rúmgott með fataskápum og parket á gólfi. Flott útsýni að Esju.
Baðherbergi er nýlega endurnýjað, flísalagt gólf, steyptur og flísalagður sturtubotn, glerhurðir. Falleg hvít innrétting undir handlaug og speglaskápur fyrir ofan. Upphengt salerni.
Þvottahús er innan íbúðar með borðplötu með skolvask. Tengi og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Sér geymsla í sameign fylgir ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Helsta viðhald eignarinnar sl. ár:Hús: 2024: Veggir hússins sílanhúðaðir og sprungur í klæðningu lagaðar.
2023: Gluggar og hurðar málaðar.
Íbúð:2022: Glerskipti í einum stofuglugga.
2021: Baðherbergi endurnýjað.
2020: Flestir ofnar í íbúð endurnýjaðir.
Um er að ræða íbúð á mjög eftirsóttum stað í rólegu og vinsælu hverfi þar sem öll helsta þjónusta er í göngufæri s.s Spöngin og Egilshöll. Leikskóli, grunnskóli og framhaldsskóli er í hverfinu. Stutt í golfvöll, göngu- og hjólasvæði meðfram strandlengjunni og um hverfið
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir löggiltur fasteignasali, [email protected] / 8994703
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.