*** NÝTT Á SKRÁ - LEITAÐ ER TILBOÐA Í EIGNINA***
Heimili fasteignasala og Ragnar Þorgeirsson löggiltur fasteignasali gsm 774-7373, kynna ákaflega hlýlegt einbýlishús i Litla Skerjafirði. Á nokkru árabili hefur húsið verið mikið endurnýjað, það er klætt bárujárni og nýtur sín vel á þessum stað, ásamt bílskúr á stórri gróinni lóð. Hentar vel sem einbýli en má auðveldlega leigja út að hluta og auðvelda kaupin. Tækifæri fyrir græna fingur eða þá sem vilja vera útaf fyrir sig en samt miðsvæðis í borginni.Fallegt timburhús á steyptum kjallara byggt 1931 og skráð 103,5 fm, auk 18,4 fm. bílskúrs eða 121.9 fm. Reyndarteikning arkitekts sýnir kjallara og hæð samtals 102,5 fm. og að risið sé 29 fm. sem ekki hafa ratað í skráningu eignarinnar. Þá segir teikningin að bílskúr sé 29,7 fm. og heildarstærð samkv. reyndarteikningum þvi 161,2 fm. Gólfflötur í risi er vissulega mun meiri. Kjallari getur nýst sem séríbúð. Húsið stendur á eignarlóð sem skráð er 450 fm en skv. eigendum er hún nær 1000 fermetrum. Á stórri lóðinni hefur verið komið fyrir tveimur 14,4 fm. smáhýsum og því upplagt að "útvista unglingana" eða afla leigutekna.
Komið er inn i anddyri hússins sem opnast til hægri inn í eldhús og áfram inn i samliggjandi stofu og borðstofu. Þaðan er gengið út í stóran suðurgarð. Töfrandi eldhús er með nýlegri fallegri innréttingu með hvítum marmara á borðum og ítölskum blöndunartækjum. Á hæðinni er eitt svefnherbergi. Úr anddyri er gengið upp í risið. Marrar í fallegum stiga og komið uppá lítinn pall. Uppi eru tvö björt og rúmgóð svefnherbergi undir súð og endurnýjað baðherbergi með baðkari og sturtuklefa. Gert er ráð fyrir svölum út af baðherberginu, þar er svalarhurð og gluggi. Falleg lútuð og olíuborin eldri gólfborð eru á hæð og risi, sem auk veggja- og loftaklæðningar mynda sterkan en hlýlegan karakter sem hefur verið vel varðveittur.
Innangengt er á milli allra hæða í húsinu en einnig er sérinngangur í kjallara. Þar hefur verið komið fyrir frístandandi baðkari auk salernis í rúmgóðu holi, en mætti auðveldlega loka með hengi eða vegg. Gott þvottahús er í kjallaranum sem jafnframt nýtist sem búr og eldhúsaðstaða, allt eftir þörfum íbúa á hverjum tíma. Til suðurs er stórt og rúmgott herbergi/stofurými, með stórum fataskápum. Rýminu má auðveldlega skipta í tvennt, t.d. stofu og svefnherbergi, henti það nýjum eigendum.
Samkv. seljanda hefur húsið á nokkru árabili verið yfirfarið og endurnýjað; Þak- og veggjaklæðning hefur verið endurnýjað, einnig rafmagn, vatns- og skólplagnir. Gluggar og gler endurnýjað að hluta, auk eldhúss og baðherbergis sem fyrr er getið.
Bílskúrinn þarfnast viðhalds. Þar er rafmagn og hiti og er hann nú nýttur sem vinnustofa og geymsla.
Lóð er stór, þar eru gróðurhús, smáhýsi og ýmis búnaður, matjurtagarður, runnar og trjágróður.
Ákaflega sjarmerandi eign, einskonar ævintýraland sem býður uppá ýmsa möguleika og vert er að skoða.
Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þorgeirsson í síma 774 7373 eða [email protected]
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.