Kríuhólar 4, 111 Reykjavík (Efra Breiðholt)
74.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
5 herb.
147 m2
74.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1974
Brunabótamat
69.440.000
Fasteignamat
81.850.000

Heimili fasteignasala kynnir til sölu fjögurra til fimm herbergja íbúð á fimmtu hæð (íb. 0505) að Kríuhólum 4, 111 Reykjavík. Eignin er skráð 147,3 m2, þar af íbúðarrými 115,6 m2, geymsla 5,8 m2 og bílskúr 25,9 m2, og skiptist í hol, gang, borð- og setustofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/baðherbergi auk geymslu á jarðhæð og bílskúrs.  

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected] 

Nánari lýsing.

Anddyri/hol: Rúmgott, laus fataskápur, parket á gólfi. 
Stofa: Gólfsíðir gluggar, parket á gólfi og útgengi á suður svalir eignar.
Eldhús: Nýleg innrétting, góð vinnuaðstaða, ofn í vinnuhæð og mikið skápapláss. Á gólfi er parket og við enda rýmis er gluggi. 
Svefnherbergi 1: Inn af anddyri, laus fataskápur innan herbergis, gluggi til austurs. Á gólfi er parket. 
Svefnherbergi 2: Inn af anddyri, gluggi til austurs. Á gólfi er parket. 
Svefnherbergi 3: Er þar sem er gert ráð fyrir borðstofu skv. teikningu. Gluggar á tvo vegu og parket á gólfi. Möguleiki að breyta núverandi skipulagi til fyrra horfs. 
Hjónaherbergi: Rúmgott með stórum fataskápum og gluggum til austurs. Á gólfi er parket.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, baðkar og er ágætis innrétting í kringum vask með skápum og skúffum.
Þvotta- og baðherbergi: Inn af anddyri. Vegghengt WC, handlaug, sturtuklefi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Á gólfi eru flísar. 
Geymsla: Á jarðhæð, merkt 01-26, skráð 5,8m2 skv. eignaskiptasamningi. 
Sameign: Á fyrstu hæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla, leikherbergi, snyrting, þvottahús, þurrkherbergi og frystigeymsla. 
Bílskúr. Eigninni tilheyrir 25,7 mbílskúr (sá fyrsti frá vinstri) með nýlegri bílskúrshurð. 

Falleg og rúmgóð íbúð með fjórum svefnherbergjum í grónu hverfi í Reykjavík. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected] 
 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.