Hverfisgata 82, 101 Reykjavík (Miðbær)
Tilboð
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
2 herb.
49 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1960
Brunabótamat
26.750.000
Fasteignamat
50.750.000

Heimili fasteignasala og Sigríður Lind fasteignasali kynna snyrtilega 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í vel staðsettu fjölbýlishúsi í miðbæ Reykjavíkur. Húsið er teiknað af Sigvalda Thordarson arkitekt og hefur að sögn eiganda fengið gott viðhald m.a. er nýlega búið að skipta um þakjárn, glugga, múrviðgerðir og málað að utan. Eignin er skráð 49,7 fm, að auki er sérgeymsla á hæðinni.  Bókið skoðun HÉR!

Íbúðin er studioíbúð, anddyri, stofa, svefnrými og eldhús.  Baðherbergi og geymsla.
 

Nánari lýsing:
Anddyri: rúmgott með vel skipulögðum hillum og fatahengi.
Stofa: Bjart og gott rými með glugga á tvo vegu. Gott útsýni að Esju. Flísar á gólfi.                     
Eldhús: í opnu rými með stofu, nýleg innrétting með góðu skápaplássi og innbyggðri uppþvottavél. Helluborð og bakarofn.
Svefnrými:  inn í rýmið var hannað og sérsmíðað rúmstæði með smekklegum sérsmíðuðum hirslum, bæði skúffur og skápar sem gefa mikið geymslupláss.
Baðherbergi: er fremst við anddyri, flísalagt gólf og veggir að hluta. Baðkar, handlaug, speglaskápur ofan við. með innréttingu, 
Geymsla: Rúmgóð geymsla sem staðsett er á hæð utan við íbúð.
Sameign: Á fyrstu hæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Útgengt á sameiginlega verönd frá stigagangi.

Vel staðsett eign með góðu útsýni í hjarta borgarinnar. Í göngufæri er allt sem miðbærinn hefur uppá að bjóða, verslanir, veitingastaði, skóla og ýmsa þjónustu. Að auki er stutt í fallegar göngu og hjólaleiðir m.a meðfram Sæbrautinni.  Gegnt húsinu er Vitatorg bílastæðahús, fasteignaeigendur eiga kost að fá bílastæðakort/íbúakort gegn greiðslu. 
Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir löggiltur fasteignasali. [email protected] / 8994703.


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.