Hrísateigur 12, 105 Reykjavík (Austurbær)
90.000.000 Kr.
Fjölbýli
4 herb.
102 m2
90.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1944
Brunabótamat
54.850.000
Fasteignamat
82.550.000

Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu:  Hrísateigur 12 - falleg og mikið endurnýjuð hæð í þríbýlishúsi í Teigahverfinu rétt við Laugardalinn.  Stutt grunnskóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu og alla helstu þjónustu.  Sérbílastæði við húsið ásamt bílskúrsrétti. Falleg lóð með verönd. 

Sameiginlegur inngangur með efri hæðinni. Komið er uppá teppalagðan stigapall. Bjartur parketlagður gangur.  Björt og falleg stofa/borðstofa með parketi, áfastar sérsmíðaðar bókahillur fylgja, fallegur franskur útgluggi setur mjög sterkan svip á rýmið.  Borðstofa með parketi. Tvöföld frönsk glerhurð er á milli stofu og borðstofu og er hægt að nota rýmið sem herbergi eða borðstofu, í dag er herbergið notað sem svefnherbergi. Eldhúsið er flísalagt og er í miðju hússins, það var endurnýjað árið 2020 og er með fallegri innrétting með stein borðplötum, stór og rúmgóð eyja sem hægt er að sitja við, góð vinnuaðstaða og mikið skápapláss. Tveir ofnar, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur fylgja.  Stórt hjónaherbergi með parketi og útgangi út á skjólgóðar svalir í suður, fataskápur er í hjónaherberginu. Rúmgott svefnherbergi með parketi og fataskáp. Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, innrétting og baðkar, gluggi.  Í sameign er geymsla íbúðarinnar og sameiginlegt þvottahús sem nýlega var uppgert.  Eigninni fylgir sérbílastæði við húsið og bílskúrsréttur. 

Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð að innan og utan. Að innan var sett nýtt eldhús og öll tæki árið 2020.  Á sama tíma var skipt um innihurðar og parket. Ofnar hafa verið endurnýjaðir sem og rafmagnstafla og lagnaefni. Rafmagnstafla í sameign er einnig endurnýjuð. Allt parket er viðarparket og var það olíuborið 2024.  Að utan var húsið viðgert og endursteinað árið 2022. Einnig var viðbygging klædd að utan, en þar er sameiginlegt þvottahús. Sama ár voru allir gluggar og þakkantur lakkaðir.  Frárennsli var endurnýjað og yfirfarið árið 2006, frá húsi og út í brunn. 

Hæðin er vel skipulögð og sérlega björt með gluggum til allra átta.  Húsið er staðsett á mjög vinsælum og eftirsóttum stað í rólegu fjölskylduvænu hverfi. Göngufæri er í Laugardalinn, Laugarnesskóla, Laugalækjarskóla, leikskóla, íþróttasvæði Þróttar og Ármanns, þjónustukjarna á Laugalæk, heilsugæslu á Kirkjusandi o.fl.    


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.