Grettisgata 47, 101 Reykjavík (Miðbær)
125.000.000 Kr.
Einbýli
5 herb.
115 m2
125.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1902
Brunabótamat
65.000.000
Fasteignamat
96.500.000

Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu:  Grettisgata 47 - sérlega fallegt og mikið endurnýjað einbýli ásamt aflokaðri lóð og sérbílstæði sem er við hlið hússins. Húsið er klassískt timburhús eins og þau voru byggð í upphafi 20. aldar, það er byggt á hlöðnum grágrýtiskjallara eins og þá tíðkaðist. Einstakt tækirfæri til að eignast mikið endurnýjað einbýli í miðborg Reykjavíkur. 

Húsið skiptist með eftirfarandi hætti:  
Miðhæð: Anddyri, stórt opið rými sem er stofa, borðstofa og eldhús. 
Risið: Tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með sturtu.
Kjallari: Anddyri, Stórt herbergi (gæti verið tvö), þvottahús, baðherbergi með baðkari og geymsla. 

Komið er inn á miðhæðina, flísalögð forstofa og fataskápur. Opin og sérlega björt stofa með vínilparketi á gólfi.  Eldhús & borðstofa eru opin við stofuna. Í eldhúsinu er falleg innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Fallegur upphengdur háfur er í eldhúsinu sem hæfir rýminu vel. Fallegur viðarstigi er upp í risið. Þar er komið uppá gang með vínilparketi á gólfi. Stórt hjónaherbergi með góðum skápum og vínilparketi á gólfi.  Svefnherbergi með vínilparketi og fataskáp. Fallegt baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, innrétting og sturtuklefi, gluggi er á baðinu. Gengið er niður í kjallarann frá opna rýminu á miðhæðinni. Komið er niður á gang eða anddyri og er útgangur út á lóðina. Stórt herbergi með fataskáp og vínilparketi á gófli (þetta herbergi gæti verið tvö minni, sjá teikningu). Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, baðkar og innrétting. Þvottahús og geymsla er einnig í kjallaranum.  Sérbílastæði fylgir húsinu við hlið þess. Stór aflokuð hellulögð verönd/sólpallur er við húsið. 

Húsið var mikið endurnýjuð að innan á árunum 2018 til 2019.  Frárennsli var endurnýjað út í götu og skipt um dren. Raflagnir endurnýjaðar og skipt um töflu. Ofnalagnir endurnýjaðar ásamt ofnum, settur var gólfhiti í kjallarann.  Baðherbergin voru endurnýjuð sem og eldhús, gólfefni o.fl. Árið 2024 voru þrjár hliðar hússins klæddar að utan, settir nýjir þakgluggar og þakið málað og yfirfarið. Einnig voru settar upp Flexit loftræstitæki á efri hæðir hússins, það tryggir heilnæmt loftflæði í húsinu og er stjórnað með appi.  Eignin nýtist betur en skráðir fermetrar þar sem hluti af gólffelti í risi er óskráður. 

Húsið er einstakt uppgert timburhús í miðborg Reykjavíkur sem sameinar sjarma sögunnar, hlýlegt andrúmsloft og einstaka staðsetningu.  


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.