Breiðavík 4, 112 Reykjavík (Grafarvogur)
69.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herb.
101 m2
69.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1996
Brunabótamat
52.800.000
Fasteignamat
73.400.000
Opið hús: 17. mars 2026 kl. 17:00 til 17:30.

*** Nýtt á skrá  -  Laus strax ***

Heimili fasteignasala og Ragnar Þorgeirsson löggiltur fasteignasali (s. 774 7373 / [email protected]) kynna góða 3ja herbergja 101,5 fm íbúð með sérinngangi af svölum á efstu hæð þriggja hæða fjölbýlishúss á eftirsóttum stað í Víkurhverfi Grafarvogs. Tvö góð herbergi; Forstofuherbergi og hjónaherbergi. Sérgeymsla 6,7 fm. og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð. Suðursvalir og merkt bílastæði á plani gefa eigninni aukið gildi. 


Komið er að íbúðinni innst á svalagangi með góðu útsýni til norðuaustur yfir Esjuna. Inn af snyrtilegri forstofu er rúmgott herbergi með fataskáp.  Björt stofa með gólfsíðum glugga og þaðan gengið út á sólríkar suðursvalir.  Stórt fullbúið eldhús með viðar innréttingu er opið vð stofu.  Rýmið ákaflega hlýlegt og bjart.
Hjónaherbergið er rúmgott með miklu skápaplássi. Baðherbergi flísalagt, með hvítri innréttingu og sturtu með mosaik flísum, auk baðkars.  Tengi fyrir þvottavél og þurrkara og opnanlegur gluggi á baðherbergi.

Flísar á gólfum í forstofu, eldhúsi og baðherbergi en parket á alrými og svefnherbergjum, nokkuð farið að sjá á parketinu.  Allir ofnar í íbúðinni eru nýir frá 2025.

Hér er tækifæri til að hreiðra um sig í litlu fjölbýli á eftirsóttum stað í rólegu og vinsælu hverfi, þar sem öll helsta þjónusta er í göngufæri.  Stutt er í leikskóla, skóla, framhaldsskóla, íþrótta- og afþreyingarmiðstöðina Egilshöll, golfvöll og verslunarmiðstöðina Spöngina. Örstutt í fjöruna og fallegar gönguleiðir allt í kring.  

- Seljendur leita að stærri eign og helst með bílskúr.
Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þorgeirsson í síma 774 7373 eða [email protected]


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.