Opið hús: 21. mars 2026 kl. 13:00 til 13:30.Opið hús: Gnoðarvogur 76, 104 Reykjavík, Hæð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd laugardaginn 21. mars 2026 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.
Heimili fasteignasala og Sigríður Lind fasteignasali kynna bjarta og mikið endurnýjaða 6 herbergja hæð með sérinngangi ásamt bílskúr á frábærum stað í Vogunum í Reykjavík. Eignin er skráð 172 fm þar af bílskúr 23,8 m2. Tvær geymslur. Húsið er reisulegt steinsteypt fjórbýlishús byggt 1960.Nánari lýsing:Forstofa Náttúruflísar á gólfi, góður fataskápur ásamt fatahengi.
Gestasalerni er inn af forstofu, flísalagt í hólf og gólf, með náttúruflísum á gólfi og hvítum flísum á veggjum. Nett innrétting undir handlaug, upphengt salerni. Opnanlegur gluggi.
Eldhúsið er með glæsilegri hvítri háglans innréttingu með graníti á borðum. Vaskurinn er niðurfelldur. Span helluborð og háfur. Stæði fyrir uppþvottavél. Gluggar á tvo vegu sem að gefa rýminu fallega birtu.
Hol með fallegu eikar parketi á gólfi.
Stofa/borðstofa eru samliggjandi í björtu og rúmgóðu rými með fallegu eikarparketi á gólfi og útgengi út á sólríkar suður svalir. Fallegar hurðar með gleri skilja að stofu og hol.
Herbergi (1) er inn af eldhúsi með flísum á gólfi og góðum glugga. Var áður þvottaherbergi, lagnir til staðar og lítið mál að breyta því í fyrra horf. ( vantar mynd í auglýsingu)
Herbergi (2) með fallegu eikaparketi á gólfi og hvítum fataskáp með rennihurðum.
Herbergi (3) með fallegu eikarparketi á gólfi og hvítum fataskáp.
Herbergi (4) með fallegu eikarparketi á gólfi.
Baðherbergi með náttúruflísum á gólfi og fallegum blönduðum flísum á veggjum. Stór sturtuklefa með glerskilrúmi. Upphengt salerni og smekkleg eikarinnrétting. Handklæðaofn. Opnanlegur gluggi. Hitalögn í gólfi.
Bílskúr með rafmagni og heitu/köldu vatni og nýlegri rafdrifinni bílskúrshurð. Flísar á gólfi.
Sameign er einstaklega snyrtileg með sameiginlegu þvottahúsi, hver með sína vél.
Geymslur eru tvær, önnur með lökkuðu gólfi og glugga. Hin er köld geymsla undir stiga.
Helstu framkvæmdir:
2012-2013 Var
íbúðin mikið endurnýjuð m.a eldhús ásamt öllum tækjum. Bæði baðherbergi endurnýjuð. Innihurðir endurnýjaðar. Ofnar endurnýjaðir. Ný rafmagnstafla. Ný gólfefni.
2016-2017 Dren og skolplögn endurnýjuð ásamt vatnslögnum. Þvottahús flotað og sameign máluð, gólf lökkuð.
2022 Húsið múrviðgert á austurhlið og hluta af framhlið, grunnað yfir.
Hér er um að ræða vel staðsetta eign í hinu vinsæla Vogahverfi Reykjavíkur þar sem stutt er í verslanir, þjónustu, skóla, leikskóla, íþróttir og útivist.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir löggiltur fasteignasali, [email protected], 8994703.
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.