Hrafnhólar (íb.0305) 6-8, 111 Reykjavík (Efra Breiðholt)
69.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
5 herb.
125 m2
69.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1974
Brunabótamat
59.400.000
Fasteignamat
78.900.000
Opið hús: 17. mars 2026 kl. 17:15 til 17:45.

Opið hús: Hrafnhólar (íb.0305) 6-8, 111 Reykjavík, Íbúð merkt: 03 03 05. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 17. mars 2026 milli kl. 17:15 og kl. 17:45.

Heimili fasteignasala kynnir til sölu fimm herbergja íbúð á 3ju hæð í klæddu lyftuhúsi að Hrafnhólum 6-8 í 111 Reykjavík. Eignin er skráð 125,2 m2 að stærð, þar af íbúðarrými118,6 m2 og geymsla 6,6 m2, en til viðbótar eru yfirbyggðar svalir sem eru ekki inn í birtri stærð. Íbúðin er vel skipulögð og samanstendur af anddyri, gangi, eldhúsi, baðherbergi, þremur svefnherbergjum, borð- og setustofu þaðan sem útgengt er á fyrrgreindar svalir sem snúa til vesturs. Vel skipulögð eign í grónu hverfi. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected]
 

Nánari lýsing.
Anddyri: Flísar á gólfi, tvöfaldur fataskápur.
Eldhús: Stór innrétting, mikið skápapláss, góð vinnuaðstaða og ofn í vinnuhæð. Á milli borðplötu og efri skápa er falleg viðarklæðning og innst í eldhúsrými er borðkrókur og gluggi með opnanlegu fagi. Á gólfi er parket.   
Borð- og setustofa: Stór og rúmgóð með parketi á gólfi og útgengi á yfirbyggðar vestur-svalir. Möguleiki að útbúa fjórða svefnherbergi eignar úr hluta af stofu eins og upphaflegar teikningar gerðu ráð fyrir. 
Svefnherbergi (1): Inn af anddyri, laus fataskápur innan herbergis og gluggi með opnanlegu fagi. Á gólfi er parket.
Svefnherbergi (2): Við hlið hjónaherbergis, fataskápur innan herbergis og gluggi með opnanlegu fagi. Á gólfi er parket. 
Svefnherbergi (3): Rúmgott með fjórföldum fataskáp og gluggum til austurs. Á gólfi er parket.
Baðherbergi: Hvít innrétting með góðu skápaplássi, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara, vegghengt wc, handklæðaofn, sturtuklefi og rúmgóður handklæðaskápur.   
Geymsla: Skráð 6,6 m2, er í kjallara húseignar.
Sameign: Er snyrtileg og vel til haldin. Í anddyri eru nýlegir póstkassar og dyrasími ásamt aðgengi fyrir hjólastóla. Á gólfi í anddyri eru flísar en á stigapöllum er teppi. Þá er nýleg lyfta í húsinu, rúmgóð hjóla- og vagnageymsla auk sameiginlegs þvottahúss. 

Vel skipulögð eign í grónu hverfi.

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs.,. [email protected]


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.