Álfheimar 42, 104 Reykjavík (Vogar)
74.900.000 Kr.
Fjölbýli
4 herb.
97 m2
74.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1958
Brunabótamat
42.850.000
Fasteignamat
68.750.000
Opið hús: 23. mars 2026 kl. 16:45 til 17:15.

Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu:  Álfheimar 42 - björt og vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð á jarðhæð við Laugardalinn.  Húsið er nýlega viðgert og málað, nýlegt parket á allri íbúðinn. 

Húsið er allt nýlega lagað að utan, það múrviðgert og málað, þak yfirfarið og m.a. skipt um þakjár, rafmagnstafla endurnýjuð o.fl. 

Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, [email protected] 


Komið er inn á bjart anddyri/hol með parketi. Stór stofa með parketi og gluggum á tvo vegu. Stórt hjónaherbergi með parketi. Stórt svefnherbergi með parketi. Svefnherbergi með parketi og fataskápum. Bjart og rúmgott eldhús með parketi, innréttingin er nýlega endurnýjuð að hluta og lítur vel út, góður borðkrókur i eldhúsinu. Baðherbergi með flísum á gólfi og á veggjum að hluta, baðkar. skápur og gluggi. Á stigapalli fyrir framan íbúðina er stór tvöfaldur skápur. Í sameign er sérgeymsla íbúðar, sameiginlegt þvottahús þar sem hver er með sina vél, hjólageymsla og dekkjargeymsla. 

Helsta viðhald á húsinu sl. ár, að sögn seljanda:
-  Á þaki var endurnýjað járn og pappi ásamt túðum fyrir um 3 árum
-  Húsið var yfirfarið, steypuviðgert og málað fyrir um 2 árum
-  Frárennslið var fóðrað fyrir  um 7 árum síðan. 
-  Dren hefur verið endurnýjað, fyrir um 20 árum. 
-  Stór hluti glers í íbúðinni var endurnýjaður fyrir um 2 árum. 
-  Dyrasímar í stigagangi eru nýlega endurnýjaðir og skipt um varmaskipti í kyndingu fyrir nokkrum árum.

Lóðin er sameiginleg Álfheimum 38-42 og eru leiktæki á lóðinni.  Bílastæði á lóðinni eru sameiginleg og er komin rafhleðslustöð fyrir tvær hleðslur en búið er þó að leggja grunn að fleirum.  Bæði sameign og aðkoma að húsinu eru sérlega snyrtileg. 
Útivistarsvæðið í Laugardalnum er nánast í bakgarðinum, göngufæri í alla þjónsustu í Glæsibæ og Skeifunni. Skólar eru í göngufæri. Frábær staðsetning miðsvæðis í Reykjavík. 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.