Sæból 35, 350 Grundarfjörður
23.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
70 m2
23.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1978
Brunabótamat
41.500.000
Fasteignamat
21.600.000

Heimili fasteignasala kynnir vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð (íb. 0105) í steinsteyptu, klæddu, húsi að Sæbóli 35, 350 Grundafirði. Eignin er skráð skv. FMR 70,2 m2 að stærð, þar af íbúðarrými 65,3 m2 og geymsla í kjallara (merkt 0004) 4,9 m2, og skiptist í anddyri/skála, stofu með útgengi út í garð, eldhús, baðherbergi og tvö rúmgóð svefnherbergi.  ATH! Íbúðin getur verið laus við undirritun kaupsamnings.

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected]


Nánari lýsing.
Anddyri: Gengið inn um snyrtilega sameign og komið inn í anddyri/skála eignar þar sem er tvöfaldur fataskápur. Á gólfi er parket.
Stofa: Rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Svölum eignar (7,8 m2), hefur verið lokað og eru nú hluti af stofu. Þar eru flísar á gólfi og útgengi í garð þar sem möguleiki er að byggja verönd. 
Eldhús: Opið er frá stofu og inn í eldhús, nýleg innrétting, ágæt vinnuaðstaða, mikið skápapláss, flísar að hluta til á vegg milli borðplötu og efri skápa, gluggi með opnanlegu fagi. Á á gólfi er parket.
Baðherbergi: Er með fallegri nýlegri innréttingu, skápur undir handlaug, ,,walk in" sturta, vegghengt WC, handklæðaofn, vegghengdur skápur og tengi fyrir þvottavél. Á gólfi og á veggjum við wc og sturtu eru flísar. 
Svefnherbergi 1: Parket á gólfi, fataskápur innan herbergis.
Svefnherbergi 2: Parket á gólfi, fataskápur innan herbergis.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús, sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og [sér]geymsla íbúðar.

Skv. upplýsingum frá seljanda var húsið að miklu leyti endurnýjað árið 2017 þar sem frárennsli, neysluvatn, hitakerfi, ofnar, raflagnir, innréttingar og gólfefni voru endurnýjuð. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected]

 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.