Hofteigur 34, 105 Reykjavík (Austurbær)
62.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
59 m2
62.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1946
Brunabótamat
30.845.000
Fasteignamat
58.750.000

Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu: Hofteigur 34 - sérlega góð 3ja herbergja risíbúð.  Íbúðin var öll endurnýjuð að innan 2019-2020, að utan er húsið endursteinað o.fl.  Frábær staðsetning við Laugardalinn.  

Íbúðin er sérlega vel skipulögð, björt og falleg. Hún var endurskipulögð og mikið endurgerð á árunum 2019-2020, m.a. var loft tekið upp í stofunni, nýtt eldhús, nýtt baðherbergi o.fl. o.fl.   


Sameiginlegur inngangur er með neðri hæðinni.  Komið er inn á parketlagt hol, fataskápur.  Bjart opið parketlagt rými sem er eldhús, borðstofa og stofa. Fallegir bogadregnir kvistar setja mjög fallegan svip á rýmið.  Mikil lofthæð er í stofunni og innfeld lýsing. Í eldhúsinu er falleg hvít  HTH innrétting, innbyggð Bosch uppþvottavél og vönduð AEG tæki. Rúmgott parketlagt hjónaherbergi með skápum. Barnaherbergi með parketi og skápum.  Baðherbergi með flotuðu gólfi, baðkar með sturtu yfir, ljós innrétting og tengi fyrir þvottavél. Fibo baðplötur frá Þ.Þorgrímsson eru að mestu á veggjum og í kringum baðkarið, opnanlegur Velux þakgluggi. 
Í sameign hússins er snyrtilegt þvottahús þar sem er hver íbúð getur haft eigin vélar. Mjög vel útbúið geymsluloft er yfir íbúðinni og er fellistigi í holinu.  Loftið, sem er ekki inni í stærð íbúðarinnar, er allt einangað og klætt.  Gólflötur íbúðarinnar er stærri þar sem hluti er undir súð. 

Húsið og íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð sl. ár, má þar nefna. 
2016 Húsið viðgert að utan og steinað, járn á þaki og þakgluggar endurnýjaðir. 
2019–2020 – Heildarendurnýjun íbúðar;
Allir veggir rifnir niður, einangrun endurnýjuð og settar nýjar gipsplötur. Eldhús var fært, sett inn ný HTH innrétting og tæki. Baðherbergi endurnýjað og sett ný gólfefni á alla íbúðina.  Skipt um rafmagn og töflu. Vatnslagnir endurnýjaðar.Gler á suðurhlið íbúðar endurnýjað
2022 Skipt var um dren að framan og á hluta vestur hliðar, restin mynduð og skoðuð. Frárennslislagnir endurnýjaðar. Þvottahúsgluggi endurnýjaður.
2024 Gólf í þvottahúsi málað
2025 Múrviðgerðir á tröppum utandyra. 

Eignin er í bakhúsi og er sérlega vel staðsett í hverfinu, Laugarnesskóli og leikskólinn Hof eru handan götunnar.  Hitalögn er í stéttinni fyrir framan húsið frá götunni. Aðkoman að húsinu er sérlega snyrtileg, góð lóð í rækt.  Í garðinum er 11 fm geymsluskúr sem er sameign allra íbúðanna, hann þarfnast lagfæringa. 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.