Meistaravellir 9, 107 Reykjavík (Vesturbær)
Tilboð
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
4 herb.
101 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1965
Brunabótamat
53.950.000
Fasteignamat
78.950.000

Heimili fasteignasala og Sigríður Lind fasteignasali kynna bjarta og vel skipulagða 4ra herbergja 101,1 fm íbúð á 2. hæð í mikið endurnýjuðu og vinsælu fjölbýlishúsi að Meistarvöllum 9, 107 Rvk. Eignin samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi í opnu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og yfirbyggðar svalir.  Falleg eign á frábærum stað sem vert er að skoða.

Nánari lýsing:
Forstofa/hol: með rúmgóðum sérsmíðuðum skáp með speglahurð. 
Stofa/borðstofa: björt og rúmgóð með útgengi á góðar svalir til suðurs með opnanlegri svalalokun. Parket á gólfi.
Eldhús: opið við stofu/borðstofu. Snyrtileg og smart innrétting með viðarborðplötu, gott skápaláss og vinnuaðstaða við eyju, helluborð, háfur og bakaraofn. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Gluggi til suðurs. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: rúmgott og bjart með góðu skápaplássi. Nú nýtt sem barnaherbergi. Parket á gólfi.
Barnaherbergi I: rúmgott og bjart, fataskápur. Nú nýtt sem hjónaherbergi. Parket á gólfi.
Barnaherbergi II: rúmgott og bjart, fataskápur. Parket á gólfi. 
Fataherbergi/geymsla: á svefnherbergisgangi, möguleiki að breyta í þvottahús, dæmi um það í húsinu.
Baðherbergi: Nýlega endurnýjað. Nýjar flísar á gólfi og veggjum, baðkar með sturtuaðstöðu, glerskilrúm, upphengt salerni, handlaug og blöndunartæki endurnýjuð ásamt innréttingu.
Geymsla: staðsett í samegin/kjallara og er 7,2 fm. 
Þvottaherbergi: staðsett í sameign/kjallara. Einstaklega snyrtilegt og rúmgott með iðnaðarþvottavél, tímaskráning. Tveir gluggar og góð þurrk aðstaða. 
Sameign: ásamt þvottaherbergi er sameiginleg hjólageymsla í kjallara, með útgengi á framlóð hússins.
Garður: Stór garður sunnan við húsið, gott hitað bílaplan við húsið. Þrjú rafhleðslustæði.

Framkvæmdir og endurbætur húsfélags:
2014 Svalalokanir á allar svalir hússins.  Gluggar endurnýjaðir þar sem þurfti.
2019 Húsið einangrað og klætt með álklæðningu á allar hliðar. 
2021 Þrjár sameiginlegar hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla settar upp. Rafmagnstafla hússins er nýleg.
2023 Stigagangur málaður og gólfdúkur bónaður.
2024 Dyrasímar endurnýjaðir í stigagangi og myndavéla dyrasímar settir upp í öllum íbúðum.
2024 Þvottaherbergi flotað og málað.
Framkvæmdir innan íbúðar:
2017 Nýtt eikarparket á öll svefnherbergi.
2017 Nýir eikar sólbekkir í öll svefnherbergi.
2017 Nýr fataskápur í hjónaherbergi (er núna með kojum).
2019 Sérsmíðaður fataskápur í forstofu.
2020 Baðherbergi gert upp og endurnýjað.
2026 Nýr háfur í eldhúsi. Borðplata endurnýjuð ásamt eldavél og uppþvottavél nýlega.

Hér er um að ræða fallega, bjarta og rúmgóða íbúð í vel viðhöldnu fjölbýlishúsi í hjarta Vesturbæjar. Næg bílastæði. Stutt í helstu þjónustu, s.s leikskóla, grunnskóla, Háskóla Islands, íþróttasvæði KR, Sundlaug Vesturbæjar og verslanir. 
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir löggiltur fasteignasali, [email protected] / 8994703

 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.