Marteinslaug 14, 113 Reykjavík (Grafarholt)
95.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
5 herb.
137 m2
95.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2004
Brunabótamat
72.550.000
Fasteignamat
85.250.000

Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu: Marteinslaug 14 - Mjög rúmgóð og vel skipulögð íbúð í lyftuhúsi á 2. hæð (jarðhæð sunnanmegin). Stór stofa og borðstofa, þrjú svefnherbergi ásamt vinnuherbergi. Stórglæsilegt útsýni. Stór sólpallur og opin bílageymsla.

Komið er inn í anddyri með parketi á gólfum og fataskápum.  Stórt opið parketlagt rými sem nær í gegnum alla íbúðina, þar er rúmgott eldhús og stór stofa og borðstofa.  Eldhúsið er með hvítri innréttingu og eyju sem hægt er að sitja við, mjög fallegt útsýni til norðurs yfir Úflarsárdalinn. Stofan og borðstofan er sérlega rúmgóð og er útgengt út á góðan aflokaðan sólpall í suður, á pallinum er stór og vandaður rafmagnspottur fyrir allt að 6 manns og fylgir hann með.  Innaf stofunni er stórt parketlagt vinnuherbergi, getur líka nýst sem svefnherbergi.  Rúmgott herbergi með parketi og fataskáp. Svefnherbergisgangur með parketi.  Stórt barnaherbergi með fallegum hornglugga og miklu útsýni, fataskápur er í herberginu. Flísalagt baðherbergi, innrétting,sturta sem gengið er inní, gluggi er á baðherberginu.  Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu, gluggi er á þvottahúsinu.  Rúmgott parketlagt hjónaherbergi, fataherbergi er innan hjónaherbergisins. 
Af sólpallinum er hægt að ganga út á lóðina. Í sameign er sérgeymsla íbúðarinnar.  Íbúðinni fylgir einnig opið bílastæði/geymsla. 

Eignin er vel staðsett í Úlfarsárdalnum þar sem eru fjölbreyttir möguleikar til útivistar í fallegu og aðgengilegu umhverfi. Dalurinn einkennist af opnum grænum svæðum, göngu- og hjólastígum sem liggja meðfram Úlfarsá og tengjast við stærra stígakerfi borgarinnar.
Þá er Mosfellsheiði og Esjan í seilingarfjarlægð fyrir þá sem vilja lengri göngur eða fjallgöngur. Staðsetning hentar vel fyrir fjölskyldur, hlaupara, hjólreiðafólk og alla sem vilja njóta náttúru og hreyfingar í rólegu umhverfi innan borgarmarkanna.  Göngufæri í grunnskóla og alla íþróttaaðstöðu Fram. 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.