Þórsgata 8, 101 Reykjavík (Miðbær)
41.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Stúdíóíbúð
2 herb.
32 m2
41.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1927
Brunabótamat
23.200.000
Fasteignamat
41.600.000

Heimili fasteignasala og Sigríður Lind fasteignasali kynna virkilega skemmtilega og notalega studioíbúð í risi í bakhúsi að Þórsgötu 8b. Eignin er skráð 32,8 fm en gólfflötur er stærri þar sem hún er töluvert undir súð. Íbúðin skiptist í eldhús, stofu, svefnkrók og baðherbergi. Húsið er bárujárnsklætt timburhús byggt 1927. Tvær íbúðir eru í húsinu sem er kjallari, hæð og ris. Hús og þak var klætt bárujárni 2011. 
Nánari lýsing:
Gengið er í gegnum undirgang frá Þórsgötu að bakhúsinu sem kúrir falið á baklóðinni. Við húsið er skjólgóður garður til suðurs. 
Komið er inn í litla sameiginlega forstofu sem íbúðin deilir með 1.hæð. Þaðan er gengið inn í stigarými eignarinnar. Þegar komið er upp stiga er eldhús og borðkrókur til vinstri. Eldhús er með nettri innréttingu með stæði fyrir þvottavél, viðarborðplata, helluborð og bakarofn. Gluggi í súðinni gefur skemmtilega stemningu í eldhúsið. Við eldhús er lítil eyja með setplássi fyrir amk tvo. Á móti eldhúsi er passlegt stæði fyrir borðstofuborð undir glugga í súðinni. Borðstofa er í opnu rými með stofu sem er rúmgóð, tveir gluggar á gafli gefa góða birtu og notalegt yfirbragð. Inn af stofu er góður svefnkrókur undir súð. Á gólfi eru upprunaleg gólfborð.  Baðherbergi er með baðkari undir súð, þakgluggi. Það hefur nýlega verið endurbætt, salerni endurnýjað og lagt parket á gólf. Sameiginleg geymsla er í kjallara hússins. 

Hér er um að ræða snotra litla íbúð á rólegum stað í vel viðhöldnu bakhúsi í hjarta Reykjavikur. Sameiginlegur skjólgóður garður. Snyrtilegt umhverfi, stutt í Hallgrímskirkju, Laugaveginn og allt sem miðbærinn hefur upp á að bjóða.  
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir löggiltur fasteignasali, [email protected] / 8994703

 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.