Skipasund 55, 104 Reykjavík (Vogar)
Tilboð
Fjölbýli
2 herb.
63 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1950
Brunabótamat
31.800.000
Fasteignamat
53.600.000

Heimili fasteignasala kynnir:  Skipasund 55 - rúmgóð 2ja herbergja íbúð á jarðhæð í virðulegu og fallegu þríbýlishúsi. Geymsla innan íbúðar getur nýst sem vinnuherbergi.  

Komið er inn í hol íbúðarinnar sem er rúmgott, parket á gólfi og fatahengi.  Rúmgóð og björt stofa með parketi, gluggar á tvo vegu gefur henni góða birtu, parket á gólfi. Eldhús er með parketi á gólfi, falleg hvít innrétting og ágætur borðkrókur. Rúmgott hjónaherbergi með parketi og stórum fataskápum. Baðherbergi er með flísum á gólfi og á veggjum að hluta, sturta, nýleg innrétting, gluggi er á baðinu. Innan íbúðar er góð geymsla með parketi á gólfi, geymslan getur verið nýtt sem aukaherbergi. Í sameign er sameiginlegt þvottahús og þurkherbergi. Lóðin er sameiginleg. 

Húsið hefur verið töluvert endurnýjað sl. ár, má þar nefna: 
- 2022 voru tröppur við húsið lagaðar. 
- 2021 var húsið og gluggar yfirfarin og málað. 
- 2020 var skipt um járn á þaki.
- 2020 voru gerðar múrviðgerðir á úti tröppum.
- 2006 var endurnýjað dren.
- 2006 var frárennsli yfirfarið og fóðrað.
- 2015 var rafmagnstafla og raflagnir yfirfarnar. 

Sundahverfið í Reykjavík býður upp á einstaka blöndu af ró og nálægð við allt það helsta sem Reykjavík hefur upp á að bjóða. Hverfið er fjölskylduvænt og gróið, með stutt í skóla, leikskóla, íþróttafélögu og falleg útivistarsvæði við sjóinn. Sundahverfið er kjörinn staður fyrir þá sem vilja njóta kyrrðar, en án þess að vera langt frá borgarlífinu.
 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.