Frostafold 4, 112 Reykjavík (Grafarvogur)
64.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
88 m2
64.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1987
Brunabótamat
48.900.000
Fasteignamat
62.050.000
Opið hús: 08. apríl 2026 kl. 17:00 til 17:30.

Opið hús: Frostafold 4, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 02 02. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 8. apríl 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Heimili fasteignasala kynnir til sölu þriggja herbergja íbúð að Frostafoldi 4 í 112 Reykjavík. Eignin er skráð 81,3 fm að stærð, þar af íbúðarrými 81,3 en til viðbótar er sér geymsla íbúðar sem er ca. 7 fm að stærð og er ekki meðtalin í birtri stærð. Eignin samanstendur af anddyri, holi/skála, eldhúsi, þvottahúsi, stofu, tveimur svefnherbergjum og baðherbergi. Þá fylgir eign sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi í kjallara húseignar, sameiginleg hjóla- og vagnageymsla auk fyrrgreindrar sérgeymslu. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected]


Nánari lýsing.
Anddyri:
Parket á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Hvít innrétting með ágætu skápaplássi, góðri vinnuaðstöðu, ofn í vinnuhæð. Í eldhúsi er gluggi með opnanlegu fagi og á gólfi er parket. 
Þvottahús: Er inn af eldhúsi og þar er hvít innrétting með góðu skápaplássi, vinnuborði og tengi fyrir þvottavél. 
Stofa: Parket á gólfi, stór gluggi til suðurs og útgengi á rúmgóðar suðursvalir eignar þar sem njóta má fallegs útsýnis yfir borgina. 
Svefnherbergi: Inn á svefnherbergisgangi, lítill vegghengdur skápur innan herbergis, gluggi til suðurs og parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Fyrir enda svefnherbergisgangs, stór hvítur fataskápur, gluggar til suðurs. Á gólfi er parket. 
Baðherbergi: Ágæt innrétting með skáp undir handlaug og speglaskáp fyrir ofan, vegghengt wc og flísalagður sturtuklefi afmarkaður með sturtugleri. Á gólfi og á veggjum eru flísar.  
Í kjallara er sérgeymsla íbúðar, sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi auk sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu. 

Vel skipulögð eign í grónu hverfi þar sem stutt er í alla þjónustu og fallega náttúru.

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason lgfs., [email protected]


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.