Brattahlíð 32, 270 Mosfellsbær
96.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
111 m2
96.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2021
Brunabótamat
67.250.000
Fasteignamat
87.200.000

Heimili fasteignasala og Ragnar Þorgeirsson löggiltur fasteignasali (s. 774 7373 / [email protected]) kynna mjög fallega og vandaða 111,4 fm, fjögurra herbergja íbúð með sérinngangi á efri hæð í litlu fjölbýli á góðum stað í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í stofu, borðstofu og eldhús í björtu alrými, þrjú svefnherbergi, forstofu, baðherbergi og geymslu innan íbúðar.  Húsið er innst í botnlanga, góðar suður svalir.  Gluggar á þrjá vegu og fallegt útsýni. Íbúðin er sem ný og ber öll merki um natni og góða umgengni.

Forstofa er með fataskápum og stórum steinflísum á gólfi.
Eldhús með fallegri eikarinnréttingu með mjög góðu skápa- og skúffuplássi og innfelldri uppþvottavél.  Fallegur háfur setur svip á eldhusið og sitja má á barstólum við stóra innréttinguna.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými með eldhúsi og þaðan gegnið út á sólríkar svalir sem snúa að opnu svæði til suðurs.  Útsýni til fjalla.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum.
Svefnherbergi á gangi er rúmgott með fataskáp.
Forstofuherbergi er rúmgott með fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt, með upphengdu salerni og sturtu með glerskilrúmi (e. walk-in shower). og góðum Innréttingum sem m.a.rúma þvottavél og þurrkara.
Geymsla er innan íbúðar og því allt við höndina.
Á jarðhæð er sameiginleg vagna og hjólageymsla.
Tvö merkt bílstæði eru á lóð og einka rafhleðslustöð getur fylgt..

Stutt er í miðbæ Mosfellsbæjar, verslanir og aðra þjónustu. Einnig er Lágafellslaug í göngufæri sem og skólar, leikskólar og golfvöllurinn, sem er skammt undan. 
Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þorgeirsson í síma 774 7373 eða [email protected]


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.