Kílhraunsvegur 24, 804 Selfoss
12.900.000 Kr.
Lóð/ Byggingarlóð
0 herb.
0 m2
12.900.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
0
Fasteignamat
2.190.000

Heimili fastseignasala kynnir sumarhúsalóð í landi Áshildarmýrar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, um 75 km frá Reykjavík og 15 mínútna akstursfjarðlægð frá Selfossi. Lagt hefur verið í vinnu og umtalsverðan kostnað við lóðina, sem kemur nýjum eiganda til góða.
Lóðin, sem er 0,5 hektarar at stærð er við Kílhraunsveg 24. Heimilt er að byggja allt að 250 fm hús á lóðinni  (0,5% nýtingarhlutfall), hægt að skrá lögheimili í eigninni og hefðbundin fasteignalán eru í boði.  Þegar hefur verið steyptur grunnur og reist 14,9 fm. gestahús, sem nýta mætti meðan unnið er að framkvæmdum.  


Búið er að leggja veg inn á lóðina og gera gott bílastæði.  Rotþró er komin niður og búið er að taka inn ljósleiðara, neysluvatn og rafmagn.  Hitaveita er á lóðamörkum. Tveir geymsluskúrar eru á lóðinni ásamt stórum sólpalli.  Auk gestahússins er við pallinn hjólhýsi sem einnig er til sölu. 

Seljendur hafa fest kaup á liðlega 50 fm. einingahúsi, tilbúnu undir tréverk og greitt opinber gjöld vegna þess, Bygginga- og framkvæmdaleyfi liggur fyrir að sögn seljanda.  Samskonar hús er skammt frá og fylgja myndir af því, svo hægt sé að máta sig við það.  Ekki er gerð krafa um að nýjir eigendur gangi inn í samninginn um kaupin á húsinu.
Á lóðinni eru hraun og grasbalar.  Tré hafa verið gróðursett á lóðinni og vegir um svæðið eru tilbúnir.
Skylduaðild er að félagi lóðaeigenda og árgjald um kr. 50þús.

Hér er gott tækifæri til að hreiðra um sig á nýju og spennandi svæði, án þess að þurfa að byrja alveg á byrjuninni.
Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali, í síma 774 7373 eða [email protected]


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.