Klukkuvellir 5, 221 Hafnarfjörður
61.700.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
80 m2
61.700.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2015
Brunabótamat
46.100.000
Fasteignamat
62.600.000

Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu: Klukkuvellir 5 í Hafnarfirði - vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi. 

Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, [email protected] 


Sérinngangur er inn í íbúðina af svalagangi.  Komið er inn í anddyri með flísum.  Hol með parketi og góðum fataskáp. Rúmgott hjónaherbergi með stórum fataskápum, parket á gólfi.  Herbergi með parketi og fataskáp. Bjart opið parketlagt rými sem er eldhús, stofa og borðstofa. Stofan og borðstofan eru rúmgóð með stórum gluggum, útgengt út á stórar skjólgóðar svalir í vestur.  Eldhúsið er með innréttingur frá Axis, innfeld uppþvottavél fylgir. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, baðkar og innrétting. Þvottahús með flísum á gólfi og skáp. Í sameign er sérgeymsla íbúðarinnar ásamt sameiginlegri vagna- og hjólageymslu.  Bílastæði eru sameiginleg við húsið og er búið að setja upp hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla. 

Mjög góð staðsetning innan hverfisins, stutt í íþróttaaðstöðu Hauka og sundlaug, Skarðshlíðarskóla, leikskóla, verslun o.fl. Fjöldi gönguleiða og náttúrufegurð við Hvaleyrarvatn.  Eignin getur verið laus mjög fljótlega. 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.