Kleppsvegur 124, 104 Reykjavík (Vogar)
64.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
91 m2
64.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1966
Brunabótamat
45.100.000
Fasteignamat
61.700.000
Opið hús: 06. maí 2026 kl. 17:15 til 17:45.

Opið hús: Kleppsvegur 124, 104 Reykjavík, Íbúð merkt: 04 01 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 6. maí 2026 milli kl. 17:15 og kl. 17:45.

Heimili fasteignasala kynnir bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð (gengið upp hálfa hæð) í þriggja hæða steinhúsi byggðu árið 1966 að Kleppsvegi 124 í 104 Reykjavík. Eignin er skráð 91,8 m2 að stærð, þar af geymsla 11,3 m2, og samanstendur af anddyri/gangi, tveimur svefnherbergjum, eldhúsi, baðherbergi og bjartri stofu með gólfsíðum glugga og útgengi á suður svalir eignar. Eignin er sem stendur í útleigu og vilji hjá núverandi leigjanda að leigja áfram. Frábær fjárfesting og/eða fyrstu kaup! 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected].


Nánari lýsing.
Anddyri:
Fatahengi. Á gólfi er parket.
Eldhús: Hefur verið nýlega endurnýjað, innrétting frá Axis, góð vinnuaðstaða, ofn í vinnuhæð og mikið skápapláss. Á gólfi er dúkur og í eldhúsi er gluggi með opnanlegu fagi. 
Stofa: Rúmgóð og björt með gólfsíðum glugga og útgengi á suður svalir eignar. 
Svefnherbergi I: Parket á gólfi, gluggi til suðurs og fataskápur innan herbergis. 
Svefnherbergi II: Parket á gólfi, gólfsíður gluggi/franskar svalir og (walk in) fataskápur/herbergi innan herbergis.
Baðherbergi: Vegghengt WC, skápar undir handlaug, baðkar með sturtuhaus. Á gólfi og á veggjum eru flísar og við baðkar er gluggi með opnanlegu fagi. 
Í kjallara húseignar er rúmgóð sérgeymsla íbúðar, sameiginleg hjóla- og vagnageymsla auk sameiginlegs þvottahúss og þurrkherbergis. Í kjallara húseignar er einnig herbergi (merkt 00-08) sem er í sameign íbúða í matshlutanum og er í útleigu. 

Vel skipulögð íbúð í grónu hverfi í 105 Reykjavík þar sem stutt er í alla þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected].


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.