Trönuhjalli 9, 200 Kópavogur
66.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
82 m2
66.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1990
Brunabótamat
45.900.000
Fasteignamat
63.050.000

Heimili fasteignasala kynnir fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli að Trönuhjalla 9 í 200 Kópavogi. Eignin er skráð 77,6 m2 að stærð en til viðbótar tilheyrir íbúð ca. 5,0 m2 sér geymsla á jarðhæð. Eignin samanstendur af anddyri, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, eldhúsi og stofu þaðan sem útgengt er á suður svalir eignar.  Falleg og vel skipulögð íbúð á skjólsælum stað miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur, lgfs., [email protected]


Nánari lýsing.
Anddyri:
Parket á gólfi, fatahengi og mikið skápapláss. 
Eldhús: Falleg hvít innrétting, góð vinnuaðstaða, mikið skápapláss, ofn í vinnuhæð, gluggi til suðurs og rúmgóður borðkrókur. Á gólfi er parket.
Stofa: Rúmgóð og björt með gólfsíðum gluggum til suðurs, parketi á gólfi og útgengi á rúmgóðar suður svalir eignar. 
Baðherbergi: Ágætir skápar undir handlaug, flísalagður sturtubotn, handklæðaskápur og tengi fyrir þvottavél. Á gólfi og á veggjum eru flísar. 
Barnaherbergi: Rúmgott með parketi á gólfi, glugga til norðurs og tvöföldum fataskáp. 
Hjónaherbergi: Rúmgott með parketi á gólfi, glugga til norðurs og fjórföldum fataskáp.
Geymsla: Á jarðhæð er sérgeymsla íbúðar sem er ca. 5,0 m2 að stærð og með glugga. 
Á jarðhæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og sameiginlegt þvottahús og fyrir framan hús er sameiginlegt leiksvæði fyrir yngstu kynslóðina.

Þá er fjöldi bílastæða óskiptri sameign fyrir framan hús, að undanskildum bílastæðum við bílskúra, og til stendur að fjölga rafhleðslustöðvum í sameiginlegum bílastæðum. 

Falleg íbúð í grónu hverfi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þar sem stutt er í alla helstu verslun og þjónustu sem og falleg útivistarsvæði. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected]


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.