Jöklafold 43, 112 Reykjavík (Grafarvogur)
65.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
87 m2
65.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1988
Brunabótamat
45.900.000
Fasteignamat
65.500.000
Opið hús: 11. maí 2026 kl. 17:15 til 17:45.

Opið hús: Jöklafold 43, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 03 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 11. maí 2026 milli kl. 17:15 og kl. 17:45.

Heimili fasteignasala kynnir til sölu rúmgóða og bjarta 87,6 fm., þriggja herbergja íbúð með skjólgóðum, sólríkum svölum að Jöklafold 43 í 112 Grafarvogi. Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 87,6 fm að stærð, þar af íbúðarrými 82,2 fm og geymsla 5,4 fm. Hún samanstendur af rúmgóðu holi, eldhúsi, borð- og setustofu, baðherbergi með þvottaaðstöðu, tveimur svefnherbergjum, sérgeymslu í kjallara auk sameiginlegs rýmis. Falleg íbúð í grónu og barnvænu hverfi þar sem stutt er leik- og grunnskóla, sund og íþróttir og alla helstu þjónustu. Fallegar göngu- og hjólaleiðir eru í voginum.

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected].


Nánari lýsing.
Hol/anddyri: Rúmgott með tvöföldum fataskáp, fatahengi og harðparketi á gólfi. 
Eldhús: Falleg hvít innrétting beggja vegna, mikið skápapláss, góð vinnuaðstaða og gert ráð fyrir uppþvottavél. Á gólfi eru flísar og í eldhúsi er rúmgóður borðkrókur við fallegan hornglugga.
Borð- og setustofa: Harðparket á gólfi og útgengi á suðvestur svalir eignar.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með fimmföldum fataskáp og góðum glugga. Á gólfi er harðparket.
Barnaherbergi: Harðparket á gólfi og fataskápur innan herbergis.
Baðherbergi: Ágæt innrétting með efri og neðri skápum, baðkar og sér sturtuklefi, handklæðaofn, gluggi með opnanlegu fagi og sérsmíðuð innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Á gólfi og á veggjum eru flísar. 
Á jarðhæð/kjallara er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla, sameiginlegt þvottahús auk sérgeymsla íbúðar. 

Skv. upplýsingum frá seljanda var sameignin var máluð og teppalögð árið 2018 og árið 2025 var skipt um alla glugga sem þörf var á í húsinu ásamt því að húsið var múr-, steypuviðgert og málað.

Falleg íbúð í grónu og barnvænu hverfi þar sem stutt er leik- og grunnskóla, sund, íþróttir, fallegar göngu- og hjólaleiðir og alla helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected].


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.