Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu: Mjög vel skipulagt einbýlishús á einni hæð við Hólmatún á Álftanesi (Garðabær). Húsið er með fjórum svefnherbergjum og einnig hefur verið útbúin íbúð í hluta bílskúrs. Glæsilegar sérhannaðar innréttingar, vönduð gólfefni o.fl. Mjög gott fjölskylduhús. Húsið er vel staðsett einbýli á rólegum stað innarlega í botngötu í fallegu og friðsælu hverfi á Álftanesi í göngufæri við náttúrna. Stórt frágengið bílaplan og aflokaðir sólpallar. Fallegur garður er umhverfis húsið.
Komið er inn á anddyri með stórum fallegum flísum á gólfi. Flísarnar eru á nánast öllum sameiginlegum rýmum og gefa húsinu fallegan heildarsvip. Anddyrið er með góðum fataskáp. Innaf anddyri er rúmgott þvottahús með flísum á gólfi og góðum innréttingum og skápum. Gestasnyrting með flísum. Mjög stórt opið flísalagt rými sem nýlega hefur verið endurgert. Í rýminu er stór stofa, borðstofa og stórglæsilegt eldhús með innréttingu sem hönnuð er af Berglindi Berndsen innanhúsarkitekt. Stofan og borðstofan er sérlega björt með mörgum gluggum og útgengi út á pall. Eldhúsið er hjarta hússins og þar er stórglæsileg um 2ja ára sérsmíðuð innrétting frá xxxx?. Stór eyja og mikið skápapláss, innbyggð lýsing, plötur til að auka hljóðvist, tveir ofnara og innbyggð uppþvottavél, allt vönduð tæki frá xxxx. Einnig fylgir með tvöfaldur ísskápur ?? Rennihurð er út frá eldhúsinu út á sólpallinn.
Svefnherbergisgangur með flísum. Þar eru fjögur mjög rúmgóð svefnherbergi, öll með harðparketi á gólfi. Hjónaherbergið er með stórum nýlegum skáp og svo eru skápar í tveim barnaherbergjanna. Stórt baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf, sturtuklefi, baðkar og innrétting.
Búið er að innrétta fallega íbúð í hluta bílskúrsins, hluti við bílskúrshurð er svo nýttur sem geymsla. Íbúðin er með sérinngangi, parket er á gólfi í opnu rými se mer stofa og eldhús. Fullbúið baðherbergi með flísum, innréttingu og sturtuklefa. Svefnrýmið er stúkað af með fataskáp, parket er á gólfi.
Stór gróinn garður og skjólsæl verönd. Lítill skúr er í garðinum sem fylgir með. Hann nýtist vel fyrir garðáhöld eða til leikja fyrir börnin.
Vel hefur verið hugsað um húsið og er það í eigu upphaflegra eiganda. Nýlega var skipt um felsta glugga þess að undaskildum xxx sem voru metnir í lagi.
Húsið er sérlega vel staðsett á Álftanesinu. Göngufæri er á fallega og vinsæla gula sandströnd og fjölbreyttar gönguleiðir meðfram sjónum. Einnig er göngufæri í skóla og leikskóla ásamt íþróttamiðstöð og í hina glæsilegu sundlaug Álftaness.
Hvaða útihurðar er búið að skipta um. Annað viðhald sem hefur verið gert á húsinu sl ár ?? ..
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.