Esjugrund 70, 116 Reykjavík (Kjalarnes)
78.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
3 herb.
112 m2
78.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2002
Brunabótamat
53.990.000
Fasteignamat
70.450.000

Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu: Endaraðhús, ásamt bílskúr, á einni hæð við Esjugrund 70 á Kjalarnesi.  Húsið hefur verið töluvert endurnýjað sl ár.

Komið er inn á anddyri/hol með flísum á gólfi og fatahengi. Opið rými sem er stofa, borðstofa og eldhús, á gólfum er fallegt eikarparket.  Eldhúsið er með fallegri nýrri innréttingu og tækjum, innfeld uppþvottavél og ísskápur, innfelld vifta er í helluborðinu,  Rúmgott hjónaherbergi með parketi og fataskápum.  Barnaherbergi með parketi og fataskáp.  Rúmgott nýlega endurnýjað baðherbergi, flísar á gólfi og veggjum, stór innrétting og sturta sem gengið er inní, gluggi er á baðherberginu og tengi fyrir þvottavél & þurrkara.  Þvottahús með máluðu gólfi, er í dag nýtt sem vinnuherbergi. Innangengt í fullbúinn bílskúr sem er fullbúinn.  Frá bílskúrnum er stigi upp á stórt geymsluloft sem er yfir stærstum hluta hússins. Lóðin er í ágætri rækt og er stór sólpallur í suður fyrir framan húsið. Næg bílastæði eru við húsið. 

Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, [email protected] 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.