Hlíðarhjalli 50, 200 Kópavogur
63.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Tvíbýli
2 herb.
64 m2
63.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1989
Brunabótamat
38.950.000
Fasteignamat
62.750.000

Frábær fyrstu kaup í glæsilegu tvíbýlishúsi við Hlíðarhjalla 50 í Suðurhlíðum Kópavogs.

Heimili Fasteignasala og Anna Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu virkilega bjarta og fallega mikið endurnýjaða 2ja herbergja íbúð á neðri hæð í sérlega glæsilegu tvíbýlishúsi á vinsælum og eftirsóttum stað við Hlíðarhjalla 50 í Kópavogi. Falleg aðkoma er að eigninni og skemmtilegt skjólsælt útivistarsvæði  Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni og er staðsett í fallegu umhverfi þaðan sem stutt er í verslanir, þjónustu, leikskóla, skóla og skemmtilega göngu-og hjólastíga. Eignin er skráð 64,3 fm að stærð og skiptist í forstofu og hol, bjarta og rúmgóða stofu, með gluggum í tvær áttir, úr stofu er útgengi út í sólríkan og skjólsælan  garð sem snýr  til suðurs.  Fallegt nýlega endurnýjað eldhús þaðan sem innangengt er í þvottahús/búr og geymslu íbúðar. Flísalagt baðherbergi með sturtu og bjart svefnherbergi með skápum og parketi á gólfi.

Allar frekari upplýsingar veitir Anna Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali, sími 898-2017  *** Bókið skoðun hjá [email protected] ***


Nánar um eignina:
Forstofa:  Flísalögð og rúmgóð með fatahengi.
Hol:  Með mjög góðu skápaplássi og nýlegu parketi.
Eldhús: Glæsileg ný hvít innrétting og tæki, tveir gluggar og nýlegt parket á gólfi. 
Þvottahús/búr og geymsla: Mjög rúmgott og innangengt úr eldhúsi.
Stofa: Falleg björt stofa með útgengi út í sólríkan og skjólsælan garð sem snýr til suðurs. 
Svefnherbergi: Bjart og fallegt með tveimur gluggum, góðu skápaplássi og nýlegu parketi á gólfi
Útigeymsla:  Er undir útitröppum við inngang í íbúðina og er ekki inn í fermetratölu eignarinnar.

Árið 2023 var eignin mikið endurnýjuð, m.a. eldhús, innihurðir, ofnar og parket.
 
Hér er um að ræða fallega og vel staðsetta eign miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu í glæsilegu sérbýli með sérinngangi og frábæru útivistarsvæði á veðursælum stað, eign sem bíður upp á mikla möguleika. 

Sjón er sögu ríkari!

 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.