Rauðalækur 5, 105 Reykjavík (Austurbær)
134.000.000 Kr.
Hæð
6 herb.
135 m2
134.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1982
Brunabótamat
73.850.000
Fasteignamat
104.200.000

Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu: Rauðalæk 5 í Reykjavík - Mjög glæsileg efri sérhæð með útsýni yfir Laugardalinn auk sjávarútsýnis.  Fjögur svenherbergi, mikil lofthæð, fallegur arinn í stofu o.fl. 

Íbúðin var mjög mikið endurnýjuð fyrir um 10 árum og fylgir sérbílastæði með rafhleðslustöð. 
  Íbúðin er mjög björt með glugga í allar áttir og svalir í suðvestur þer sem sól er frá morgni til kvölds. 

Komið er upp á stigapall þar sem eru skóhirslur.  Rúmgóð parketlögð forstofa með stórum skápum. Bjart rúmgott hol sem  opnast annars vegar inn í eldhús og stofu/borðstofu og hins vegar inn á svefnherbergisgang. Þar eru 4 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.

Nánari lýsing:
Stofa/borðstofa: Mjög rúmgóð með stórum gluggum og fallegum arni, mikil lofthæð og parket á gólfum, útgengt út á svalir. 
Eldhúsið er með flísum á gólfi. Það er bjart og rúmgott. Borðplötur með granít og eyja með granít. Helluborð og vifta. Gott skápapláss.
Svefnherbergisgangur með flísum á gólfi.  Af ganginum er innangegnt í 4 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Svefnherbergi I; Parketlagt með skáp.
Svefnherbergi II; Parketlagt með skáp.
Svefnherbergi III; Parketlagt með skáp.
Svefnherbergi IV; Parketlagt, rúmgott með skápum á heilum vegg og útgengi á svalir í suðvestur (sömu og útfrá stofunni). 
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, vaskinnréttingá heilum vegg með skápum. Baðkar og sturtuklefi, upphengt salerni og handklæðaofn.Gluggi er á baði.
Þvottahús: Rúmgott með grárri innréttingu, gott skápapláss, vaskur og stæði fyrir vélar.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er í sameign.
 
Fallegur ræktaður garður er í kringum húsið og sameiginleg bílastæði á lóð. Sameiginleg geymsla fylgir.  Geymsluloft er yfir einu herbergjanna.  
Húsið er byggt mun síðar en önnur hús í götunni og hefur fengið mjög gott viðhald.  Húsið var steypuviðgert og málað að utan árið 2019.  Þak var endurnýjað árið 2022. Útitröppur voru endurnýjaðar árið 2025. 
Mjög góð staðsetning rétt við Laugardalinn. Göngufæri í Laugarnesskóla, Laugalækjarskóla, leikskóla og íþróttaaðstöðu Þróttar og Ármanns í Laugardal.  Stutt í Kaffi Laugalæk, Pylsumeistarann, Brauð og Co, Fiskbúðina, Ísbúðina, Laugardalslaugina, Heilsugæsluna á Kirkjusandi, alla útivist í Laugardalnum, Kaffi Flóru o.fl.

 Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, [email protected] 
 
 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.