Fornistekkur 20, 301 Akranes
27.900.000 Kr.
Sumarhús
4 herb.
47 m2
27.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1996
Brunabótamat
26.600.000
Fasteignamat
22.350.000

Heimili fasteignasala og Sigríður Lind fasteignasali kynna eignina Fornistekkur 20, Hvalfjarðarsveit.  Fallegt og vel staðsett sumarhús með hitaveitu í landi Bjarteyjarsands í norðanverðum Hvalfirði.  Húsið stendur hátt í brekku með góðu útsýni yfir Hvalfjörðinn. Vel skipulagt hús með góðum sólpalli, skjólveggjum og heitum potti. Kjarri vaxin lóð um kring. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning. 

** Bókið skoðun HÉR **

Nánari lýsing: 
Stofa/borðstofa: opið rými við eldhús, rúmgott og bjart með útgengi á skjólgóða aflokaða timburverönd. Gluggar á þrjá vegu. Glæsilegt útsýni. Parket.
Eldhús: ágæt innrétting, helluborði með tveimur hellum. Stæði fyrir lítinn ísskáp. Parket.
Svefnherbergi: eru tvö ( möguleiki að bæta við herbergi.)  Kojur í minna herbergi.  Parket.
Baðherbergi: sturtuklefi, handlaug. Opnanlegur gluggi. Flísar á gólfi.
Anddyri: er rúmgott með góðu fatahengi. Flísar á gólfi.
Geymsluloft: yfir hluta herbergja er geymsluloft. 
Sólpallur: við húsið er skjólgóð aflokuð timburverönd með heitum potti og rúmgóðu fjölskyldusvæði fyrir matborð og grill. 

Áætlaður rekstrarkostnaður: 
Lóðarleiga: kr 106.000 pr ár. 
Hitaveita: kr 24.000 ótakmarkuð notkun, greitt annan hvern mánuð.
Fasteignagjöld: kr 124.185 pr ár. 
Brunatrygging: kr 35.452 pr ár.
Félag sumarbústaðareigenda: kr 30.000 pr ár.

Húsið stendur á leigulóð ca hálfur hektari að stærð í skipulagðri sumarhúsabyggð. Gróið land. Gott aðgengi og rúmgott bílastæði.  Húsið selst með innbúi utan persónulegra muna. Svæðið er lokað með rafmagnshliði (fjarsýring) sem tryggir gott næði og öryggi. Hér er um að ræða vel staðsett sumarhús með hitaveitu og góðu útsýni örstutt frá borginni. Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir fasteignasali [email protected] / 8994703. 
     


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.