Opið hús: 24. júní 2026 kl. 17:00 til 17:30.Opið hús: Ástu-Sólliljugata 7, 270 Mosfellsbær. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 24. júní 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Heimili Fasteignasala og Anna Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu virkilega bjarta og glæsilega 4ra- 5 herb. efri sérhæð í fallegu forsteyptu, viðhaldsléttu tvíbýlishúsi á vinsælum og eftirsóttum stað við Ástu-Sólliljugata 7 í Mosfellsbæ. Góð aðkoma er að eigninni og næg bílastæði. Eignin er staðsett í fjölskylduvænu og fallegu umhverfi þaðan sem örstutt er í skemmtileg skjólsæl útivistarsvæði, leikskóla, grunnskóla, verslanir, þjónustu og ævintýralega göngu-og hjólastíga. Íbúðin er skráð 156 fm að stærð og er með aukinni lofthæð sem gerir hana afar glæsilega. Íbúðin skiptist í forstofu, sérlega rúmgóða og bjarta stofu/borðstofu í alrými með glæsilegu eldhúsi. Veglegir gluggar í tvær áttir og stórkostlegt útsýni. Úr stofu er útgengi út á svalir í austur/suður. Fallegt eldhús með miklu skápaplássi og stórri eyju. Flísalagt baðherbergi með sturtu, sér þvottahús með geymslulofti og glugga, rúmgóð geymsla með glugga sem auðveldlega má nýta sem fjórða svefnherbergið. Þrjú rúmgóð svefnherbergi með skápum og parketi á gólfi.
Allar frekari upplýsingar veitir Anna Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali, sími 898-2017 ** Bókið skoðun hjá [email protected] **Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Sérinngangur er að íbúðinni og komið er inn í rúmgóða físalagða forstofu með hvítum fataskápum.
Stofa/borðstofa: Eru í afar glæsilegu og björtu alrými með eldhúsi, aukin lofthæð, veglegir gluggar í tvær áttir með stórkostlegu útsýni. Úr stofu er útgengt á austur/suður svalir.
Eldhús: Í alrými er rúmgott eldhús með hvítri glæsilegri innréttingu frá HTH, mikið skápapláss, flísar á milli skápa, stór eyja með niðurteknu lofti fyrir ofan með innfelldri halogenlýsingu, bakarofn á vegg, span helluborð, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Stórt parketlagt hjónaherbergi með viðarlituðum skápum.
Svefnherbergi 2: Gott parketlagt herbergi með viðarlituðum fataskáp.
Svefnherbergi 3: Gott parketlagt herbergi með viðarlituðum fataskáp.
Geymsla / svefnherbergi 4: Gott parketlagt herbergi með brúnum fataskáp. Á teikningu er þetta rými skráð sem geymsla en má auðveldlega nýta sem fjórða svefnherbergið.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með " walk in" sturtu, upphengdu salerni og hvítri innréttingu frá HTH, flísar á gólfi, flísar og baðplötur á veggjum.
Þvottahús: Með hvítri innréttingu og geymslofti, vinnuborð, skolvaskur, flísar á gólfi.
Sameiginleg geymsla: Á neðri hæð er sameiginleg vagna og hjólageymsla.
Lóð: Gróin og frágengin lóð. Framan við húsið er hellulögð gangstétt og malbikuð bílastæði. Sér hleðslustöð fylgir eigninni.
Húsið: Burðarvirki er úr tvöföldum forsteyptum einingum. Þakið er flatt með möl ofaná, nýbúið að skipta um dúk á þaki og niðurfall. Aukin lofthæð er í allri íbúðinni.
Hér er um að ræða fallega og vel staðsetta eign í glæsilegu sérbýli með sérinngangi á veðursælum stað í Mosfellsbænum. í göngufæri er Helgafellsskóli og tveir leikskólar í næsta nágreinnieinnig eru margar fallegar gönguleiðir í kring.
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.