Sogavegur 192, 108 Reykjavík (Austurbær)
Tilboð
Hæð/ Hæð í þríbýlishúsi
4 herb.
97 m2
Tilboð
Stofur
2
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1954
Brunabótamat
41.400.000
Fasteignamat
77.400.000

Heimili fasteignasala og Ragnar Þorgeirsson löggiltur fasteignasali (s. 774 7373 / [email protected]) kynna mjög fallega 97,8 fm. miðhæð með sérinngangi innst í rólegum botnlanga á Sogaveginum.  Ný eldhúsinnrétting, allt nýtt í þvottahúsi, gólfefni nýleg og ekki langt síðan allt var málað.  Skjólgóður sólpallur er við húsið, sem umvafið er gróðri á þessum skjólsæla stað í 108 Reykjavík. Sannkölluð dekureign sem ber með sér öll merki nosturs og góðrar umgengni. 
Sjáið myndirnar!


Forstofa með hengi og skáð.  Samliggjandi stofa og borðstofa og þaðan gengið út á pallinn.  Tvö góð svefnherbergi með skápum, endurnýjað baðherbergi og nýstandsett þvottahús innan íbúðar. Í nýrri eldhúsinnréttingu er gott skápapláss og öll tæki ný, þ.m.t. ísskápur og uppþvottavél sem fylgja.  Þvottahús er inn af eldhúsi, Þvottavél og þurrkari í vinnuhæð og gott skápapláss, auk þess sem þar er innfelldur frystiskápur sem fylgir. Við innkeyrslu er u.þ.b. 10 fm. óskráður geymsluskúr íbúðar.
 
Unnið er að gluggaskiptum á norðurhlið hússins. Um er að ræða baðherbergis-, eldhús- og þvottahúsglugga hæðar. Seljandi greiðir hlut íbúðar í þeim framkvæmdum.  Samkv. seljanda hefur á nokkru árabili verið unnið að ýmsum framkvæmdum við húsið og íbúðina sjálfa;
2024 - Austurhlið hússins drenuð að nýju.
2024 - Eldhús og þvottahús endurnýjað og hluti baðherbergis endurnýjað. Íbúð öll máluð sem og gluggar og innihurðir málaðar. Skipt um gólfefni og undirlag í eldhúsi.
2023 - Byggður óskráður geymsluskúr á lóð (við enda á innskeyrslu) ca. 10fm.
2018 - Byggður pallur og tröppur niður í garð frá stofu. ATH; Pallurinn er séreign íbúðar samkv. þinglýstu skjali.
2017 - Skipt um parket og undirlag. Skipt um ofn í borðstofu.
2016 - Dren sett í kringum húsið og skólplagnir endurnýjaðar.
2012 - Ýmsar viðgerðir á húsinu s.s. Gert við sprungur og málað utan.  Þak yfirfarið og málað. Þakrennur endurnýjaðar og gert við tröppur. Á sama tíma var skipt um nokkra glugga í risi og skipt um gler og lista í stofu og svefnherbergi á þessari eign.

Fágætt tækifæri til að hreiðra um sig í vel búinni eign á þessum eftirsótta stað í borginni.  Skólar, leikskólar, verslanir og fjölbreytt þjónusta í göngufæri.
Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þorgeirsson í síma 774 7373 eða [email protected]

 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.