Lundeyjarsund 9, 805 Selfoss
Tilboð
Sumarhús
3 herb.
46 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1981
Brunabótamat
24.750.000
Fasteignamat
31.600.000

Heimili fasteignasala kynnir Lundeyjarsund 9. Lítið sætt sumarhús í Hraunborgum í Grímsnes-og Grafningshreppi.
Húsið er á 5000 fm leigulóð í eigu Sjómannadagsráðs og skiptist í rúmgott opið rými með stofu, eldhúsi og borðstofu. Tvö svefnherbergi, snyrtingu, forstofu og svefnloft. 

Bókið skoðun HÉR.
Nánari lýsing: 

Forstofa: rúmgóð. Flísar á gólfi. Fatahengi. 
Snyrting: salerni og handlaug, opnanlegur gluggi,geymsluhillur, flísar á gólfi. 
Herbergi I: stæði fyrir tvíbreitt rúm, nettur fataskápur. Gluggi. Parket á gólfi. 
Herbergi II: með tvær kojur. Gluggi. Parket á gólfi. 
Eldhús: ágæt innrétting með góðu skápaplássi. Eldavél með tveimur hellum.
Stofa/borðstofa: rúmgott, bjart og skemmtilegt rými opið við eldhús. Útgengt út á verönd til suðurs. Parket á gólfi. 
Svefnloft: yfir ca helming hússins. Að svefnlofti er góður stigi með handriði. þar er svefnpláss fyrir 2-3. Opnanlegur gluggi. 

Rekstarkostnaður:
Lóðarleiga:  kr 134.343 (2025)
Félag sumarbústaðareigenda: kr 15.300

Húsið er hitað með rafmagni. Þar er kalt vatn og hitakútur. Lóðin er skjólgóð og gróðursæl, á lóðinni er lítill geymsluskúr. Góð aðkoma, lóð afmörkuð með góðu hliði og næg bílastæði. Hitaveita er á svæðinu og er komin að lóðarmörkum fyrir þessa eign. Svæðið er lokað með rafmagnshliði yfir vetrarmánuðina. Þjónustumiðstöð, sundlaug og 9 holu golfvöllur eru á svæðinu. Stutt er í aðra þjónustu.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir löggiltur fasteignasali, [email protected] / 8994703.



 


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.