Heimili fasteignasala kynnir til sölu frábært fjölskylduhús byggt árið 1991 að Miðhúsum 1 í Grafarvogi. Eignin er skráð 208,8 m2 að stærð, þar áf íbúðarrými 176,8 m2 og bílskúr 32 m2, og samanstendur af anddyri, snyrtingu, eldhúsi, þvottahúsi, borðstofu, setustofu og herbergi á neðri hæð og sjónvarsstofu, þremur rúmgóðum svefnherbergjum, þvottahúsi og nýlega endurnýjuðu baðherbergi á efri hæð. Frá sjónvarpsstofu er útgengt á svalir og frá borðstofu/eldhúsi er útgengt á afgirta timburverönd eignar. Þá tilheyrir eign rúmgóður 32 m2 bílskúr og fallegur garður. Eign með mikla möguleika í grónu hverfi sem vert er að skoða!
Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected]
Nánari lýsing.
Neðri hæð.
Anddyri: Rúmgott með flísum á gólfi og ágætu fatahengi þar sem er áföst kommóða með neðri skúffum.
Snyrting: Inn af anddyri er snyrting þar sem er vegghengt WC, handlaug og opnanlegt fag. Á gólfi eru flísar.
Hol/gangur: Frá anddyri er komið inn á gang þar sem á hægri hönd er stigahús og stofur og á vinstri hönd er svefnherbergi neðri hæðar. Á gólfi er parket.
Herbergi 1: Bjart með glugga til austurs. Á gólfi er parket.
Borð- og setustofa: Eru í opnu og björtu rými þar sem eru gluggar á tvo vegu og parket á gólfi. Frá borðstofu er útgengt á aflokaða timburverönd eignar og frá henni er hægt að ganga út í garð sem umlykur eignina.
Eldhús: Heilleg eldri innrétting með miklu skápaplássi, góðu borðplássi og góðri vinnuaðstöðu þar sem er ofn í vinnuhæð. Í eldhúsi eru stórir gluggar til suðurs og á gólfi eru flísar.
Þvottahús/geymsla: Inn af eldhúsi, ágætt vinnuborð og hillur þar fyrir ofan. Á gólfi eru flísar og frá rými er gengt út á hellulagða verönd.
Efri hæð.Gengið upp á efri hæð um fallegan hálf-hringlaga parketlagðan stiga sem er í björtu stigahúsi með stórum gluggum á vegg og í hluta af þaki.
Sjónvarpsstofa: Tengir saman önnur rými efri hæðar. Aukin lofthæð, stórir gluggar og útgengi á svalir. Á gólfi er parket og fyrir ofan sjónvarpsstofu er geymsluloft sem er ekki í birtri stærð eignar.
Herbergi 2: Skráð 11,65 m
2 að stærð á teikningu, er að hluta til undir súð og því stærra að gólffleti. Góðir gluggar innan herbergis, panill í lofti og parket á gólfi.
Herbergi 3: Skráð 11,65 m
2 að stærð á teikningu, er að hluta til undir súð og því stærra að gólffleti. Innan herbergis er fataskápur, í lofti er panill og á gólfi er parket.
Herbergi 4: Skráð 12,56 m2 að stærð á teikningu, er að hluta til undir súð og er því stærra að gólffleti. Innan herbergis er fataskápum, í lofti er panill og á gólfi er parket.
Baðherbergi: Nýlega endurnýjað, innrétting með handlaug, neðri skápum og spegli með baklýsingu, handklæðaofn, vegghengt WC, flísalagður sturtuklefi afmarkaður með glerþili. Á gólfi og á veggjum eru flísar og í rými eru þrír gluggar, tveir af þeim opnanlegir.
Þvottahús: Innrétting með handlaug og neðri skápum. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara, málað gólf og opnalegur þakgluggi innan rýmis.
Bílskúr: Rúmgóður með aukinni lofthæð, inngangshurð á suðurhlið, gluggar til vesturs og nýlegri bílskúrshurð með rafknúnum hurðaopnara. Við hlið bílskúrs er sorptunnugeymsla og fyrir framan bílskúr er og hellullagt bílastæði eignar.
Frábær fjölskyldueign með mikla möguleika á frábærum stað í grónu hverfi þar sem stutt er í fallega náttúru.
Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected]
Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.