Eskiás 1, 210 Garðabær
75.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herb.
80 m2
75.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2022
Brunabótamat
49.000.000
Fasteignamat
73.250.000

Heimili fasteignasala og Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali (s. 774 7373 / [email protected]) kynna bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð með sérinngangi og sólríkri verönd miðsvæðis í Garðabæ. 
Íbúðin er skráð 80,2 fm og skiptist í forstofu, alrými eldhúss og stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottavélaaðstöðu og geymslu innan íbúðar.  Viðhaldslétt hús byggt 2022.


Komið er inn um sérinngang í forstofu með góðum fataskápum.  Inn af forstofu er geymsla með glugga. 
Eldhúsið er fallegt með vandaðri innréttingu frá Nobilia, stór eyja er í eldhúsinu. Ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð og fylgja með. Span helluborð og ofn í vinnuhæð. Stofan er björt og þaðan gengið út á suðurverönd.  Framan við veröndina er skjólgóður sameiginlegur garður. 
Svefnherbergin eru tvö og bæði með fataskápum.  Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, sturta með glerskilrúmi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Parket  á gólfum, nema á baðherbergi, forstofu og geymslu sem eru flísalögð.

Sameiginleg hjóla og vagnageymsla í sameign hússins.
Húsið er uppsteypt og klætt utan með áli. Gluggar eru ál-tré. Vandaður frágangur á lóð og hleðslustöðvar komnar upp. Djúpgámar eru á hornum götunnar. 

Hér er tækifæri til að hreiðra um sig í nýlegri íbúð í grónu hverfi miðsvæðis í Garðabæ. Sérinngangur og suðurverönd gefa eigninni aukið gildi.
Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þorgeirsson í síma 774 7373 eða [email protected]


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.