Vatnsstígur 20-22, 101 Reykjavík (Miðbær)
124.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
103 m2
124.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2015
Brunabótamat
67.990.000
Fasteignamat
114.900.000

Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu: Vatnsstígur 20-22, stórglæsileg útsýnisíbúð í Skuggahverfinu í miðborg Reykjavíkur.  Íbúðin er á 3ju og efstu hæð með óskertu útsýni til norðurs yfir að Esjunni og allt vestur á Snæfellsnes. Íbúðinni fylgir stæði í bílakjallara og einnig er fjöldi bílastæða við húsið. 

Glæsileg 103,7 fm 2 herbergja útsýnisíbúð á 3. hæð (efsta hæðin, endi) í lyftuhúsi ásamt stæði í bílageymslu. Íbúðin er með granít á borðum, vönduð Miele tæki í eldhúsi og gólfhiti í gólfum.  Íbúðin skiptist í anddyri, baðherbergi, þvottahús, eldhús, svefnherbergi, stofu og borðstofu. Einstakt sjávarútsýni þar sem sjá má meðal annars Hörpuna, Esjuna og Snæfellsjökul. Húsvörður er í húsinu. Eignin er laus strax við kaupsamning. 

Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, [email protected] 

Nánari lýsing eignar: Lyfta er upp á hæðina, aðeins eru tvær íbúðir á hæðinni. Anddyri með parketi á gólfi og góðum skápum. Rúmgott baðherbergi með flísalagt í hólf og gólf, baðkar og sturta ásamt góðri innréttingi. Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu, gluggi.  Stórt og rúmgott parketlagt svefnherbergi með góðum fataskápum. Stórt opið rými sem er eldhús, stofa og borðstofa. Eldhúsið er með innréttingu frá GKS, með kvars stein á borðum, innbyggð uppþvottavél, span helluborð og bakaraofn. Opið er úr eldhúsi inní stofu og borðstofu. Opið alrými er rúmgott með góðu og vel búnu eldhúsi, spónlögð innrétting með kvartsborðplötum og vönduðum Miele tækjum. Rómgóðar stofur eru opnar við eldhúsið, gólfsíðir gluggar og óskert útsýni til sjávar. Svalir í vestur eru útfrá stofunni. Mert bílastæði er í bílageymslu og sér geymsla í kjallara. Öll ljós eru frá Lumex og fylgja þau með í kaupunum ásamt öllum gardýnum sem eru nýjar.  Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning. 

Birt heildarstærð íbúðarinnar er 103.7 fm, þar af er íbúðin skráð 87,1 fm og sérgeymsla í sameign merkt  00-01 er skráð 16,6 fm. 

Bókið einkaskoðun, allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, [email protected] 


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.