Hofteigur 26, 105 Reykjavík (Austurbær)
73.900.000 Kr.
Fjölbýli
4 herb.
85 m2
73.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1947
Brunabótamat
45.600.000
Fasteignamat
74.350.000

Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu: Hofteigur 26 - Björt og vel skipulögð 4ra herb. risíbúð í fallegu húsi sem hefur verið töluvert mikið endurnýjað. Frábær staðsetning í Laugardalnum.

Inngangur er sameiginlegur með neðri hæðinni og er teppalagður stigi upp í risið.  Komið er inn á hol/gang með parketi. Björt stofa með parketi, gengið út á svalir í suður. Herbergi með parketi. Rúmgott eldhús með parketi, eldhús er opið við stofuna. Í eldhúsi er tengi fyrir uppþvottavél og einnig þvottavél.  Stórt hjónaherbergi með parketi, fastaskápar, fallegur bogadreginn gluggi setur sterkan svip á herbergið. Stórt barnaherbergi með máluðu gófli og fataskápum. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, innrétting og baðkar.  Af holi/gangi er stigi upp í efra ris sem er nýtt sem geymsluloft. Í sameign er sameiginlegt þvottahús. 
Íbúðin er björt og rúmgóð, fjöldi nýtanlegra fermetra er undir súð og gólfflötur því stærri. Allt parket er gegnheill viður og er einfalt að pússa það upp.

Húsið hefur verið töluvert endurnýjað sl. ár. Frárennsli var endurnýjað 2015. Húsið var viðgert að utan og steinað að nýju árið 2019. Skipt hefur verið um alla glugga og gler á undanförnum árum.  Þakið var yfirfarið og skipt um járn árið 2016. Sett var nýtt dren við húsið 2024 og hellulagðar nýjar stéttar og gönguleiðir.  Rafmagn hefur verið endurnýjað sem og rafmagnstafla. 

Mjög góð staðsetning rétt við Laugardalinn. Göngufæri í Laugarnesskóla, Laugalækjarskóla, leikskóla og íþróttaaðstöðu Þróttar og Ármanns í Laugardal.  Stutt í Kaffi Laugalæk, Pylsumeistarann, Brauð og Co, Fiskbúðina, Ísbúðina, Laugardalslaugina, Heilsugæsluna á Kirkjusandi, alla útivist í Laugardalnum, Kaffi Flóru o.fl.

Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson, fasteignasali, [email protected].


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.