Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu: Otrateigur 50 - fallegt og vel skipulagt raðhús á þrem hæðum ásamt bílskúr. Hægt að hafa aukaíbúð í kjallaranum. Hús sem hefur fengið gott viðhald og er töluvert endurnýjað. Stór aflokaður pallur í suður með heitum potti.
Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, [email protected]Komið er inn í anddyri með flísum og fataskáp, hiti er í gólfi. Gestasnyrting með flísum, innrétting, hiti er í gólfi. Opið rými sem er eldhús, stofa og borðstofa. Eldhúsið er með fallegri hvítri sérsmíðaðri innréttingu, gegnheilar viðarborðplötur, flísar á gólfi og tengi fyrir uppþvottavél. Áfast morgunverðarborð fylgir. Björt og falleg stofa með parketi, útgengt út á svalir og þaðan niður í fallegan suðurgarð. Teppalagður stigi er upp á
efri hæðina. Komið er uppá rúmgott teppalagt sjónvarpshol (var áður svefnherbergi). Herbergi með parketi og fataskápum. Rúmgott flísalagt baðherbergi, innrétting og rúmgóður sturtuklefi. Stórt herbergi með parketi og skápum. Stórt hjónaherbergi með parketi og skápum, gengið út á svalir í suður. Innangengt er niður í
kjallarann, en einnig er sérinngangur. Parketlagt hol. Stórt parketlagt herbergi. Parketlagt eldhús/stofa. Baðherbergi með flísum á gólfi, baðkar. Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu. Geymsla með glugga. Fyrir utan innganginn í kjallarann er köld útigeymsla. Bílskúrinn er fullbúinn með nýrri bílskúrshurð, sérstæði er fyrir framan bílskúrinn og rafmagnshleðslustöð.
Einstaklega falleg útiaðstaða til suðurs er útfrá stofunni. Gengið er af svölunum niður á rúmgóðum pall með nýlegum heitum potti. Garðurinn er gróinn og sérlega skjólsæll. Þéttur og fallegur gróður rammar inn garðinn og veitir gott næði. Hér er sannkölluð sælureitur með góðu rými fyrir útihúsgögn, grill og notalegar samverustundir.
Húsið var mikið endurnýjað á árunum 2010-2012. Skipt var um frárennslið og drenið norðanmegin. Skipt var um glugga og gler. Rafmagn var endurnýjað og sett ný tafla. Skipt var um lagnir frá húsinu og tröppur fyrir framan hús endursteyptar, hiti er í stéttinni í gönguleið við húsið. Á sama tíma var húsið mikið endurnýjað að innan, m.a. skipulagi breytt og sett nýtt eldhús, ný baðherbergi o.fl.
Þakið á húsinu og bílskúrnum var endurnýjað fyrir tveim árum. Sólpallurinn er nýlega stækkaður og settur var heitur pottur.
Mjög góð staðsetning rétt við Laugardalinn. Göngufæri í Laugarnesskóla, Laugalækjarskóla, leikskóla og íþróttaaðstöðu Þróttar og Ármanns í Laugardal. Stutt í Kaffi Laugalæk, Pylsumeistarann, Brauð og Co, Fiskbúðina, Ísbúðina, Laugardalslaugina, Heilsugæsluna á Kirkjusandi, alla útivist í Laugardalnum, Kaffi Flóru o.fl.
Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.