Rauðalækur 11, 105 Reykjavík (Austurbær)
119.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
5 herb.
144 m2
119.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1957
Brunabótamat
69.340.000
Fasteignamat
101.250.000
Opið hús: 23. september 2026 kl. 16:45 til 17:15.

Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu: Rauðalækur 11 - falleg efri hæð ásamt bílskúr.  Allt að fjögur svefnherbergi og stofur.  Eign sem er töluvert endurnýjuð, frábær staðsetning. 

Skv. HMS skiptist eignin í 117.3 fm hæð og 27.2 fm bílskúr eða alls 144,5 fm. Þrjú góð svefnherbergi, sjónvarpsherbergi (var áður svefnherbergi), björt stofa og rúmgott eldhús með borðkrók.Þvottahús er innan íbúðar. 

Komið er inn í parketlagt anddyri og hol. Búið er að útbúa þvottahús þar sem áður var gestasnyrting. Útgengi er út á litlar svalir frá holinu. Í holinu eru rúmgóðir skápar. Björt stofa og borðstofa með parketi og fallegu útsýni. Búið er að opna inn í herbergi sem áður var svefnherbergi og breyta í sjónvarpsstofu, auðvelt að breyta aftur. Bjart parketlagt eldhús með góðri vinnuaðstöðu og rúmgóðum borðkrók. Neðri skápar eru nýlegir en efri skápar eru með nýlegum frontum.  Á parketlögðum gangi eru þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Hjónaherbergið er parketlagt og rúmgott með góðum skápum og er útgengt út á svalir úr því. Annað barnaherbergið er mjög rúmgott en hitt er minna, bæði með parketi á gólfi. Baðherbergið var allt endurnýjað 2017, það er flísalagt, upphengt salerni og rúmgóð sturtuaðstaða með innbyggðum sturtutækjum. 
Í sameign er sameiginlegt þvottahús og sér geymsla í kjallara. Bílskúrinn er rúmgóður, upphitaður og með góðri lofthæð. Rafmagn, heitt og kalt vatn og gott bílastæði fyrir framan sem rúmar tvo bíla. Mögulegt væri að breyta bílskúr í litla íbúð eða vinnustofu. Hleðslustöð er við bílskúrinn.

Aðkoma að húsinu er mjög góð og almennt næg bílastæði sem eru sameiginleg fyrir íbúa hússins. Upphituð stétt að hluta til við húsið. Íbúðin er björt og falleg í góðu ástandi. Skipt var um allt parket 2022 og settur nýr fataskápur í hjónaherbergið á sama tíma.  Húsið hefur fengið almennt gott viðhald í gegnum árin. skipt var um glugga og gler á suðurhlið árið 2017. Drenað var garðmegin 2017 og skipt um frárennsli 2004. Tröppur voru múrviðgerðar 2019. Skipt var um þakjárn 2004 og það skoðað 2025 og metið í góðu ástandi. Skipt var um mælagrindur í hitakompu núna í haust. Þak bílskúrs var málað 2025. Húsið vað  sprunguviðgert 2025 og á eftir að mála það.    

Mjög góð staðsetning rétt við Laugardalinn. Göngufæri í Laugarnesskóla, Laugalækjarskóla, leikskóla og íþróttaaðstöðu Þróttar og Ármanns í Laugardal.  Stutt í Kaffi Laugalæk, Pylsumeistarann, Brauð og Co, Fiskbúðina, Ísbúðina, Laugardalslaugina, Heilsugæsluna á Kirkjusandi, alla útivist í Laugardalnum, Kaffi Flóru o.fl.

 


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.